Styrkleikar – Yndisleg samvera í blíðunni í Herjólfsdal
Um síðustu helgi var mikið um að vera í Herjólfsdal. Var myndarleg barnadagskrá í boði og nú er hægt að endurtaka leikinn á morgun. Mynd Óskar Pétur.

„Mig langar að hvetja alla Reynslubolta (reynsluboltar eru þeir sem hafa glímt og/eða eru að glíma við krabbamein, til þess að skrá sig með okkur í gönguna, fyrsta hringinn og koma svo á Einsa Kalda,“ segir Bjarni Ólafur Guðmundsson einn aðstandenda Styrktarleikanna í Herjólfsdal á morgun og bendir á að spáð er blíðu.

„Við viljum bjóða heiðursgestunum okkar upp á notalegan hádegisverð eftir setningu Styrkleikanna. Skráning fer fram hér https://forms.office.com/e/iGvTGX4WbW, hver Reynslubolti getur boðið einum aðstandanda með sér.

Við vonumst eftir að sem flestir Reynsluboltar komi og taki þátt með okkur og sameinist í gleði og þakklæti. Endilega takið með ykkur fjölskyldu og vini og gerum setninguna veglega og fallega. Hvet alla til að mæta í hádeginu á morgun og ganga með reynsluboltunum fyrsta hringinn. Sýnum samstöðu með fólkinu sem hefur tekið baráttuna og styðjum við Krabbameinsfélagið í sínu verkefni.

Síðan er það fjölskyldustund/fjölskylduskemmtun á morgun – lifandi tónlist – leikir og falleg og yndisleg samvera í blíðunni í Herjólfsdal. Svo er það Ljósastund kl. 21.00 annað kvöld. Falleg minningar og þakkarstund sem ég skora á alla að mæta á,“ segir Bjarni og vísar á heimasíðu verkefnisins þar sem hægt er að skrá sig.

Nýjustu fréttir

Allison Clark tryggði ÍBV jafntefli með marki í blálokin
Staða mála hjá Herjólfi
Embla Harðardóttir sleit krossband gegn FH
Rannsóknarhola Eyjaganga komin á beinu brautina á ný
Herjólfur með sjö ferðir til Landeyjahafnar í dag
Geta Eyjastúlkur haldið pressunni á Breiðablik?
Díana Dögg og Andrea spila oddaleik um þýska meistaratitilinn
Herjólfur til Þorlákshafnar
viðburðir
Sa Portret 02022026 1
27. maí 2026
08:30
Hringferð SA í Akóges-salnum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.