Styrkleikarnir - Þakklæti og fögnuður

Við í Eyjum eigum von á góðri heimsókn laugardaginn 9. ágúst þegar Krabbameinsfélagið  mun standa fyrir viðburði sem kallast Styrkleikarnir ( sjá nánar á netinu undir Styrkleikarnir).  Einn sólarhringur, frá hádegi á laugardag til hádegis á sunnudag mun fólk vera inn í Herjólfsdal og margt hægt að gera, ganga ákv. leiðir, spjalla og eiga samfélag. Margs konar varningur verður til sölu, bolir, húfur, brúsar og fleira. Daglega er Krabbameinsfélgið að fást við mjög alvarleg mál og því eru Styrkleikarnir tækifæri til að fagna yfir sigrum og lækningu margra og minnast þeirra sem hafa fallið frá.

Faðir minn, Sigurberg M. Sigurðssson, var fæddur 9. ágúst 1931, en hann lést fyrir 23 árum eftir hetjulega baráttu við krabbamein. Mun ég minnast hans sérstaklega núna.  Allir eru velkomnir í Herjólfdal um helgina, því þetta málefni snertir okkur  flest á einhvern hátt. Starfssemi Krabbameinsfélagsins byggist að mestu á styrkjum og gjöfum frá velunnurum og við styðjum félagið með framlagi vegna  Styrkleikanna í Herjólfdal inn á; safna.krabb.is

Þóranna M. Sigurbergsdóttir – Formaður Krabbavarnar Vm.

Nýjustu fréttir

Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.