Á þessum tíma í fyrra var búið að skrá og vigta fleiri en 5.000 pysjur, tímabilið hafði náð hámarki 13. ágúst og var því í raun alveg búið áður en september rann upp.
Nú ber annað við, en 57 pysjur hafa verið skráðar á vefinn lundi.is og þar af hafa 33 verið vigtaðar. Meðalþyngd pysjanna í ár er 253 grömm, en sú þyngsta var 300 grömm og sú léttasta 175 grömm.
Á vefnum lundi.is kemur einnig fram hvar mestar líkur eru á því að finna pysjurnar en flestar finnast þær á svæðum sem eru nálægt lundabyggðunum. Stór lundabyggð er t.d. í Heimakletti og því finnst alltaf fjöldi pysja úti á Eiði og við höfnina. Einnig er lundabyggð í Dalfjalli og þaðan fljúga pysjurnar í Dalinn, á golfvöllinn og í vesturbæinn. Einnig hefur veðrið nokkur áhrif og eru t.d. fleiri pysjur að finnast ofar í bænum ef það er hvöss norðanátt.

Best er að sleppa pysjunum við sjó og eru tilgreindir nokkrir af bestu stöðunum á vefsíðunni lundi.is





















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.