Taktu þátt í að móta menningarstefnu Vestmannaeyja
Fréttatilkynning starfshóps um Menningarstefnu Vestmannaeyjabæjar
default
Vestmannaeyjabær. Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson

Aðsend grein

Sigurhanna Friðþórsdóttir

Nú er vinna við gerð menningarstefnu fyrir Vestmannaeyjabæ á lokasprettinum. Starfshópur á vegum bæjarins hefur tekið fjölda rýnihópaviðtala við hina ýmsu hópa í samfélaginu þar sem reynt hefur verið að fá fulltrúa sem flestra hagsmunaaðila að borðinu. Til þess að gefa enn fleirum kost á að segja sína skoðun hefur verið útbúin nafnlaus viðhorfskönnun sem svara má hér: Viðhorfskönnun vegna menningarmála í Vestmannaeyjum – Fill out form, settur upp hugmyndakassi í Safnahúsi Vestmannaeyja og netfangið menningarstefna@vestmannaeyjar.is virkjað. Stefnt er að því að gagnaöflun verði lokið fyrir 1. mars 2026.

Það er von okkar að áhugafólk um menningu í Vestmannaeyjum leggi lóð sitt á vogarskálarnar og eignist þannig hlut í menningarstefnunni.

 

Fyrir hönd starfshóps um nýja menningarstefnu Vestmannaeyjabæjar,

Sigurhanna Friðþórsdóttir, verkefnisstjóri.

Nýjustu fréttir

Það sem vikan skilur eftir sig
Guðrún telur að stutt geti verið í kosningar
Lundaballið haldið í Höllinni – myndir
Gjaldskrá Frístundar til endurskoðunar
Vilja setja aldursmörk á samfélagsmiðla – ábyrgðin yrði hjá foreldrum
ÍBV tapaði gegn Breiðablik á Hásteinsvelli
Fjölbreytt tómstundastarf kynnt í Íþróttamiðstöðinni
94 bjargdúfur felldar – aðgerðum ekki lokið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.