Staðan í hálfleik var 21:14, heimastúlkum í vil og munaði þar miklu um stórleik Stefaníu Theodórsdóttur, sem fór hamförum í upphafi leiks. Mbl.is greindi frá.
Garðbæingar héldu áfram að spila vel í síðari hálfleik, þar sem Rakel Dögg Bragadóttir fór fyrir sínu liði, með mörgum glæsilegum mörkum. �?á átti Hafdís Lilja Torfadóttir einnig góðan leik í marki Stjörnunnar og þegar uppi var staðið, munaði 10 mörkum á liðunum.
Markahæstar Stjörnustelpna voru Stefanía Theodórsdóttir með 10 mörk, Rakel Dögg Bragadóttir með sjö mörk og �?orgerður Anna Atladóttir með fimm mörk.
Hjá ÍBV var Ester �?skarsdóttir markahæst með níu mörk, Sandra Erlingsdóttir kom þar skammt undan með átta mörk og Sandra Dís Sigurðardóttir skoraði síðan mörk.
Eftir leikinn er Stjarnan með sjö stig og lyfta sér upp fyrir ÍBV, sem eru áfram með sex stig.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.