Það er dýrt að spara orkuna fyrir ríkið
Gísli Stefánsson

Nú hafa orkumálaráðherra, Landsnet, Vestmannaeyjabær, HS Veitur og atvinnulífið í Vestmannaeyjum skrifað undir viljayfirlýsingu um að lagðir verði tveir nýjir rafstrengir milli lands og eyja. Lagning strengjanna mun án efa styrkja atvinnulíf og auka gæði búsetu í Eyjum enn frekar… ef…tekst að búa til orkuna sem sem nú er skortur á í landinu.

Gaddavírinn kemur í veg fyrir leyfin

Leyfisveitingakerfinu má líkja við ókleifar gaddavírsgirðingar sem tekur mörg ár að klippa sig í gegnum og þjónar engum öðrum tilgangi en að vernda umhverfið sem brennsla jarðefnaeldsneytisins fær á meðan að skaða. Á meðan er grunnt á orkunni sem þörf er á víða um land.

Orkunni ekki sóað í Eyjum

Í orkuskorti má færa rök fyrir því jafnt sem í eðlilegu árferði að orkunni skal ekki sóa. Hér í Eyjum er varmadælustöð sem er frábært tæki til orkusparnaðar, en hún breytir 3MW af raforku yfir í 9MW af varmaorku til húshitunar. Þetta er mjög umhverfisvænt og á að koma í veg fyrir brennslu jarðefnaeldsneytis sem annars þyrfti að grípa til þegar kemur til skerðinga á raforku til fjarvarmaveitunnar í Eyjum.

Á að vera dýrt að spara?

En nú vandast málið. Með því að spara 6 MW af rafmagni hækkar flutningskostnaður raforkunar hjá Landsneti upp úr öllu valdi því gjaldskráin gerir ekki ráð fyrir því að orka sé spöruð. Þetta er einn helsti þátturinn í því að nú hafa hitaveitureikningar Vestmannaeyinga hækkað um 25% á innan við ári. Það er eðlilegt þegar næg orka er til skiptana að verðlauna þá sem kaupa meira með lægra verði en það skýtur skökku við í orkuskorti að refsa þeim sem spara.

Hvati gegn orkuskiptum

Hér er ríkið með módel sem hvetur til hækkunnar gjalda óháð orkuskorti, verðbólgu og háu vaxtastigi. Við erum semsagt með kerfi sem þjónar öðrum tilgangi en það þarf að gera í aðstæðum dagsins í dag og vinnur gegn þeim sem þurfa að nýta þjónustuna. Til að vinna á móti þróuninni hefur ríkið svo valið að auka niðurgreiðslu til Vestmannaeyinga úr Orkusjóði sem kemur ekki á móti hækkuninn nema að hluta. Ríkið færir því fjármagn á milli vasa sem er heldur ekki frítt því það kostar mannafla til útreikninga og eftirlits.

Rekstrarhæf verð á orku til innviða

Nú væri nær að hætta þessu vasatilfærslum sem eru ekkert annað en plástrar og tryggja að hvatar séu í kerfinu til þess að spara orkuna. Sér í lagi þegar orkuframleiðandinn, sem er líka ríkið, hefur lýst yfir orkuskorti á Íslandi. Þeir sem halda uppi innviðum í samfélögum um allt land þurfa að hafa aðgengi að orku til þeirra innviða á rekstrarhæfu verði. Nýleg skýrsla ÍSOR um hitaveitur á Íslandi sýnir að 2/3 hitaveitna á landinu eru í vanda. Ekki er hægt að útiloka það að einhver af þeim veitum þurfi í framtíðinni að nýta raforku til húshitunar líkt. Þörfin á lagfæringu í þessum málaflokki er því augljós og því megum við engan tíma missa.

 

Gísli Stefánsson

Höfundur er bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum

Nýjustu fréttir

Þrjú lið frá ÍBV í bikarúrslitum um helgina
Strangar hæfiskröfur í útboði heilsuræktar
Ísfélagið áfram einn af aðalstyrktaraðilum KFS
Útflutningsverðmæti sjávarafurða um 360 milljarðar
Eyjarnar lönduðu fullfermi í Eyjum um helgina
Vestmannaeyjar – Alveg milljón
Kæru Eyjamenn, kæru sjálfstæðismenn
Drangavík VE dregin til hafnar eftir að veiðarfæri fóru í skrúfu – uppfært

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.