Það er gott að geta vaknað glaður
Örn Friðriksson

Á morgun laugardag göngum við til bæjarstjórnarkosninga hér í Vestmannaeyjum sem og annarstaðar á landinu.  Þá reynir á kunnáttu einstaklingsins og rökhugsun til að velja það sem hentar hans hagsmunum og heildarinnar.   Framboðin þrjú hafa birt stefnu sína í þeim málefnum sem þau telja brýnust og þjóna þeim  tilgangi að kjósendur hrífist nægjanlega til að greiða þeim atkvæði.  Auðvitað á kjósandinn að fylgja því framboði sem hefur þann boðskap sem þjónar honum best og því samfélagi sem hann lifir í. Unga fólkið með börn á leikskóla aldri og grunnskóla aldri, velur það framboð sem býður bestu þjónustuna að hans mati svo dæmi sé tekið.

Við hjá Fyrir Heimaey höfum birt okkar boðskap sem borinn hefur verið í öll hús hér í bæ. Þar er farið yfir það hvernig við sjáum framtíðina fyrir okkur og hverju við höfum áorkað á því kjörtímabili sem nú er á enda.

Það er von okkar að þú kjósandi góður sjáir þér fært að kynna þér það sem Fyrir Heimaey hefur áorkað og ætlar sér að gera á næstu fjórum árum fáum við umboð þitt. Á kjörtímabilinu höfum við komið í framkvæmd yfir 90% af kosningaloforðum, við erum framboð sem stöndum við það sem við stefnum að.  Rekum ábyrga fjármálastefnu og vitum það að okkar hlutverk er þjónustustarf fyrir samfélagið. Betri Eyjar – fyrir alla, minna þras – meiri gleði.

Það er gott að geta vaknað glaður með það samfélag sem maður býr í
X við H er lykillinn að hamingjusömu samfélagi í Vestmannaeyjum fyrir alla.

Örn Friðriksson
Höfundur skipar 4. sæti á lista Fyrir Heimaey í komandi sveitarstjórnarkosningum.

Nýjustu fréttir

Minningar um gos – söngvar og sögur í Eldheimum
„Fínasti vertíðarfiskur”
Kallað eftir hugmyndum fyrir Goslokahátíð 2026
Ein ferð í Landeyjahöfn
Heilsurækt við Íþróttamiðstöðina boðin út á ný eftir kærumál
Góður mánudagur sem varð enn betri!
Fimm skip til loðnuleitar
Löndun Breka VE í Grundarfirði – flókið verkefni og fumlaus vinnubrögð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.