Góður afli á handfæri í mars og apríl Strandveiðar ganga illa í Eyjum eftir frábært vor á handfærum. Afli færabáta í mars og apríl var gríðarlega góður. Þannig var Víkurröst VE með 62 tonn og Þrasi VE með 41 tonn en þeir voru tveir aflahæstu færabátar landsins í lok apríl samkvæmt upplýsingum á aflafrettir.is. Strandveiðitímabilið hefst í byrjun maí og líkur í lok ágúst. Innan kerfisins má hver trilla róa ákveðinn fjölda daga í hverjum mánuði, þó ekki föstudaga til sunnudags. Svo keppast allir við að veiða úr heildarkvóta. Strandveiðinni er skipt í fjögur svæði, A, B, C og D.
Efni á þessari síðu er aðeins fyrir áskrifendur. Vinsamlegast skráðu þig inn til að lesa meira eða gerast áskrifandi.