Theodór Sigurbjörnsson, handboltamaðurinn efnilegi hjá ÍBV, hefur verið valinn í lokahóp U-20 ára landsliðs Íslands.  Liðið tekur þátt í Opna Evrópumótinu í Noregi en liðið leikur þar gegn Noregi, Tékkum og Svíþjóð um næstu helgi.  Theodór hefur leikið vel með ÍBV í 1. deildinni en hann er örvhentur hornamaður sem hefur líka leikið sem skytta.