Þetta var ágætis nudd
20221101 121630
Bergur VE og Vestmannaey VE við bryggju í Eyjum.

Vestmannaeyjaskipin Vestmannaey VE og Bergur VE lönduðu bæði fullfermi í Neskaupstað á sunnudag frá þessu er greint á heimasíðu Síldarvinnslunnar. Aflinn var blandaður. Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergi, segir að afli skipsins hafi fengist annars vegar á Öræfagrunni og hins vegar á Gerpisflaki. „Þetta var ágætis nudd,“ segir Jón. Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, segir að víða hafi verið veitt. „Við byrjuðum á Öræfagrunni og síðan var dýpt á flestum grunnum allt austur á Gerpisflak. Afli var hinn þokkalegasti,“ segir Egill Guðni.

Nú eru bæði skipin að veiðum fyrir austan, Bergur á Gerpisflaki og Vestmannaey í Norðfjarðardýpinu. Gert er ráð fyrir að þau landi aftur í Neskaupstað á morgun.

Nýjustu fréttir

Milan Tomic framlengir við ÍBV
Dreymir um að verða lögreglumaður
Þarf kjark til að fara á karlaráðstefnu?
Hákon hlakkar mest til að læra sund
Trúfesti Guðs rauði þráðurinn í 100 ára sögu
Binni Þór gerir tveggja ára samning við ÍBV
Mikill spenningur fyrir komandi tímabili
Gætu sparað hundruð milljóna ef grjótið reynist vel
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.