„Þetta var stutt og laggott”
220223 La Cr
Vestmannaey VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Ísfisktogarinn Vestmannaey VE landaði fullfermi í heimahöfn í Vestmannaeyjum í gær. Birgir Þór Sverrisson skipstjóri segir í samtali við vefsíðu Síldarvinnslunnar að túrinn hefði gengið vel.

„Þetta var stutt og laggott. Fínasta veður og ágætis veiði. Við byrjuðum á Péturseynni og tókum þar þrjú eða fjögur hol. Síðan færðum við okkur á Ingólfshöfðann og þar gekk þetta vel. Aflinn var mest þorskur en annars var þetta blandað; ýsa, langa, steinbítur og koli. Við lönduðum líka á miðvikudaginn eftir mjög stuttan túr. Veiðin í þeim túr var heldur róleg en þá fékkst mest af ýsu. Nú er framundan hjá okkur að njóta sjómannadagshelgarinnar,” sagði Birgir Þór. Systurskip Vestmannaeyjar, Bergur VE, er í slipp á Akureyri og mun hann ekki hefja veiðar á ný fyrr en eftir tvær eða þrjár vikur, segir í fréttinni.

Nýjustu fréttir

Ólöf Ragnarsdóttir, fréttakona á RÚV 
Hekla bætti eigið met og varð efst kvenna
Vilja taka upp daggjald í Frístund
Vikan í Eyjum: Ólögmætar uppsagnir, óveður og góðgerð í fullri Höll
Bleik messa í Landakirkju
Seinni ferðir Herjólfs falla niður vegna veðurs og sjólags
„Vestmannaeyjar eru hluti af Suðurkjördæmi alla daga ársins“
Locomotive Breath flutt til heiðurs Jóa Listó
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.