Þjóðhátíðin '95 sú besta

Hermann Hreiðarsson rifjar upp skemmtileg atvik af þjóðhátíð og þau uppátæki sem Vallógengið tók sér fyrir hendur.

„Við slógum Dalinn og eitt árið slógum við ansi stórum stöfum, Vallógengið í brekkuna þannig að það vissu auðvitað allir hverjir við vorum, vildum við meina. Þetta sást frá tunglinu,“ segir Hermann og hlær. 

En hvaða þjóðhátíð skyldi Hermanni þykja eftirminnilegust?
„Það er hátíðin 1995. Það var frábært veður, við komnir í ÍBV og þetta var fagnsumarið mikla.  Þetta var lygilegt með fögnin, það var svo mikil stemning að þau tóku orðið stóran part í undirbúningi fyrir leiki. Var þannig að ef við æfðum þrjú fögn þá skoruðum við þrjú mörk.“

Á myndinni er Hermann með fjölskyldu sinni.

Nánari umfjöllun er í nýjasta tölublaði Eyjafrétta sem kemur út í dag, 26. júlí. Blaðið er borið út til áskrifenda, en fæst í lausasölu í Krónunni, Klettinum og Tvistinum.

Nýjustu fréttir

Erlingur og Elmar með mikilvæga sigra í þýsku B-deildinni
Vikan gerð upp: Sjóslys, samgöngur og framkvæmdir settu mark sitt á vikuna
Jólasveinarnir fara í keilu á aðfangadag og dansa í kringum pálmatré
Glódís Dúna og liðsfélagar í U17 tryggðu sér sæti á EM
Hafa fundið sig vel í samfélaginu
Skipulagsvinna formlega hafin vegna hafnar við Eiðið
Sigur og tap hjá Arnari og íslensku stelpunum gegn Svíþjóð
Takmarkað dýpi hamlar siglingum um Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.