Þór, þyrla og Lóðsinn í útkall - uppfært
DSC_20025
Björg­un­ar­skipið Þór. Eyjar.net/ÓPF

Land­helg­is­gæsl­an var kölluð út laust eft­ir klukk­an 22 í kvöld eft­ir að leki kom að drátt­ar­bátn­um Gretti Sterka úti fyr­ir suðaust­ur­strönd Íslands. Frá þessu er greint á fréttavef Morgunblaðsins.

Þar er haft eftir Jóni Þór Víg­lunds­syn­i, upp­lýs­inga­full­trúa Lands­bjarg­ar að björg­un­ar­skipið Þór, þyrla Land­helg­is­gæsl­unn­ar og Lóðsinn úr Vest­mann­aeyj­um komi öll að björg­un­araðgerðum.

Er ástandið á skip­inu talið stöðugt að svo stöddu en alls koma um 20 manns að aðgerðunum. Drátt­ar­bát­ur­inn sigl­ir und­ir fær­eysk­um fána en ekki feng­ust upp­lýs­ing­ar um hve marg­ir séu um borð.

Uppfært kl. 00.10

Fram kemur á fréttavef Rúv laust fyrir miðnætti að dráttarbáturinn hafi verið suðaustur af Vík og er þyrla Landhelgisgæslunnar komin að bátnum með dælur.

Haft er eftir Ásgeiri Erlendssyni, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar að ástandið um borð í Gretti sé nokkuð stöðugt en fimm eru í áhöfn. Björgunarskip Landsbjargar, Þór úr Vestmannaeyjum er á siglingu í átt að Gretti Sterka og segir Ásgeir ætlunina vera að skipið fylgi dráttarbátnum til hafnar í Vestmannaeyjum.

Uppfært kl. 6.30

Í tilkynningu frá Landhelgisgæslu Íslands sem send var fjölmiðlum laust fyrir kl. 1 í nótt segir að þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og sjóbjörgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar hafi verið kallaðar út vegna dráttarbáts sem lenti í vanda vegna bilunar, suðaustur af Vík, á tíunda tímanum í kvöld. Fimm eru um borð í bátnum.

Áhöfn dráttarbátsins hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í kjölfar þess að báturinn tók inn á sig sjó vegna bilunar. TF-GRO, þyrla Landhelgisgæslunnar, og björgunarskipið Þór, frá Vestmannaeyjum, héldu til móts við dráttarbátinn sem tók stefnuna til Eyja þegar bilunarinnar var vart. Þá var dráttarbáturinn Lóðsinn frá Vestmannaeyjum einnig beðinn um að halda á vettvang. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var komin að dráttarbátnum um klukkan 23:30 og fóru tveir sigmenn þyrlunnar um borð í dráttarbátinn með sjódælur og hófu að dæla sjó úr bátnum. Sigmennirnir urðu eftir í dráttarbátnum meðan þyrlan hélt til Vestmannaeyja til að taka eldsneyti. Björgunarskipið Þór frá Vestmannaeyjum var komið á vettvang um klukkan 00:30 og flutti fleiri dælur um borð.

Þegar þetta er ritað eru sigmenn þyrlunnar enn um borð í dráttarbátnum og vel gengur að dæla sjó úr honum. Þá er gert ráð fyrir að Lóðsinn verði kominn á vettvang um klukkan þrjú í nótt fylgi dráttarbátnum til hafnar í Vestmannaeyjum.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.