Þrefalda nánast afköstin
8. ágúst, 2024
K94A0571
Frá framkvæmdunum. Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson

„Platan á fyrstu hæð er að klárast í þrónni og er síðasti parturinn klár í að vera steyptur. Þá eru þeir búnir að slá upp fyrir plötunni á annarri hæð að stórum hluta. Verkið er að mestu á áætlun en vinna við lagnir og hreinsistöðina hafa verið erfiðari en við reiknuðum með.“ segir Willum Andersen, tæknilegur rekstrarstjóri Vinnslustöðvarinnar. Greint er frá þessu á vefsíðu Vinnslustöðvarinnar.

Þar er ennfremur haft eftir Willum að þegar platan verði klár á fyrstu hæð verði farið í plötuna á annarri og svo hækkun á þeim veggjum sem þarf að hækka. Svo verður farið í þakið.

„Við erum að reikna með að það verði búið að loka húsinu í haust. Samfara þessu verður húsið í portinu byggt. Það er gaman að segja frá því að við erum nánast að þrefalda afköstin í hreinsistöðinni úr 140m3 í 400m3 á klukkustund og eigum að geta nýtt mun betur það sem fellur frá vinnslunum i bræðsluna. Þessi búnaður kemur frá Huber og er Iðnver umboðsaðili.“ segir Willum.

Verður hægt að ná sem mestu af próteini úr frávatninu og endurnýta það

Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri Iðnvers segir í samtali við Vinnslustöðvar-vefinn að hreinsistöðin komi til landsins í byrjun september. Pétur segir aðspurður um hvað slík hreinsistöð geri að markmiðið með hreinsuninni sé að hreinsa frávatn frá starfsstöðvum VSV og auka þannig verðmætasköpun.

„En með því að bæta frárennslibúnað er hægt að nýta betur auðlindir félagsins. Með vélbúnaði frá Huber verður hægt að ná sem mestu af próteini úr frávatninu og endurnýta það í bræðslunni. Um verulegt magn er að ræða sem verður hægt að gera verðmæti úr sem annars færi til spillis. Nútímakrafa er að fyrirtæki fjárfesti í aukinni sjálfbærni í sínum rekstri sem stuðlar að aukinni verðmætasköpun. Þessi búnaður er líka til þess ætlaður að VSV standist þær mengunarkröfur sem gerðar eru til þeirra með losun í sjó.“ segir hann.

Samstarfið framúrskarandi

Guðmundur Óskar Aðalsteinsson, verkefnastjóri hjá Eykt, sem annast byggingu hússins segir framkvæmdirnar ganga vel.

„Í næstu viku klárum við að steypa plötu fyrstu hæðar. Þá kláraðist uppsteypa hreinsistöðvar í þessari viku. Þetta var hugsanlega flóknasti parturinn af framkvæmdinni sem og allar þær lagnir sem eru undir plötunni.”

Hann segir að unnið sé að undirslætti fyrir plötu á annarri hæð og þá er hafin vinna við koma fyrir togvírum í plötuna sem á seinna að strekkja. En það er samskonar uppbygging á plötunni og brúarsmíði.

„Við munum hefjast handa við að steypa plötuna á næstu þremur vikum. Farið verður þá í að steypa veggi á annari hæð og koma upp þaki.”

Spurður um fjölda þeirra sem komi að verkinu segir Guðmundur Óskar að í dag séu frá Eykt 23 starfsmenn auk þriggja í verkstjórn og á dagskrá sé að bæta í. Einnig eru ca. 4 – 6 menn frá Miðstöðinni í framkvæmdunum og 2 frá Brinks gröfuþjónustu.

„Ef það ætti að nefna eitthvað sem er framúrskarandi við þetta verkefni þá væri það hversu gott samstarf hefur verið hér á milli allra aðila. Það er ekki sjálfgefið að fara í þetta flókið verkefni og ófyrirséð – byggja ofan á gamla loðnuþró – og komast svona átakalaust í gegnum það. Þá myndi ég minnast helst á Símon hjá Brinks og Bjarka hjá Miðstöðinni. ” segir Guðmundur Óskar í samtali við vef Vinnslustöðvarinnar – vsv.is.

Myndband frá framkvæmdunum má sjá hér að neðan.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst