Dagskrá þrettándagleðinnar
Þrettándagleðin verður haldin með hefðbundnu sniði.

Hin árlega Þrettándagleði ÍBV verður haldin með hefðbundnu sniði á morgun, föstudaginn 9. janúar. Spáð er blíðskaparveðri, köldu en rólegu.

Áframhaldandi dagskrá tengt þrettándanum mun einnig standa yfir helgina.

Föstudagur 

14:00: Grímuball Eyverja verður á sínum stað í Höllinni þar sem jólasveinar mæta og veitt verða verðlaun fyrir búninga.

19:00: Formleg dagskrá þrettándans hefst við Hánna. Í framhaldi af því verður flugeldasýning, blysför, jólasveinar, tröll, tónlist og gengið verður inn á malarvöllin þar sem skemmtunin heldur áfram.

23:45: Þrettándaball í Höllinni, fram koma Birnir, Nussun og Emmsjé Gauti.

Laugardagur

11:00-12:00:  Boðið verður upp á sérstaka sýningu í Sagnheimum þar sem gestir fá að skyggnast inn í fortíð Vestmannaeyja í gegnum lifandi kvikmyndir frá síðustu öld.

12:00-14:00: Tröllagleði fyrir alla krakka í íþróttamiðstöðinni undir stjórn Fimleikafélagsins Ránar.

12:00-15:00: Þrettánda þrautaleikir fyrir krakka á Bókasafninu.

12:00-16:00: Langur laugardagur í verslunum Vestmannaeyja.

21:00: Uppistand í Höllinni með Pétri Jóhanni. Miðasala á tix.is.

Sunnudagur 

13:00: Þrettándamessa í Stafkirkjunni. Tríó Þóris Ólafssonar sjá um tónlist.

Nýjustu fréttir

Spurt og svarað: Hildur Rún frá Eyjalistanum
ÍBV á útivelli gegn Val
Aldan enn of há fyrir Álfsnes
Kjarnaboranir hefjast í Eyjum: „Stærsti áfangi í sögu félagsins til þessa“
Vel heppnaður fundur
Krefjandi umræða styrkir okkur
Viðbragð við svari Eyþórs
Sterkari grunnskóli og öflugri framtíð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.