Tíðar landanir
londun_eyjarnar
Ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergur VE lönduðu báðir fullfermi í Vestmannaeyjum í gær. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergur VE lönduðu báðir sl. laugardag og síðan aftur í gær. Í gær lönduðu þeir báðir fullfermi í Vestmannaeyjum en á laugardaginn landaði Bergur í Þorlákshöfn og Vestmannaey í Eyjum.

Virðist allt vera heldur seint á ferðinni

Rætt er við skipstjórana, þá Birgi Þór Sverrisson á Vestmannaey og Jón Valgeirsson á Bergi á vef Síldarvinnslunnar í dag. Birgir Þór sagði að vertíðarfiskurinn væri heldur seint á ferðinni.

„Já, hann kemur nú með seinni skipunum. Það virðist allt vera heldur seint á ferðinni og vonandi er loðnan líka bara sein þetta árið. Við lönduðum tæplega 60 tonnum á laugardag og þá var aflinn mest þorskur og ufsi. Í þeim stutta túr var veitt á Pétursey og Vík í rysjóttu veðri. Síðan var haldið út strax eftir löndun og fyrst veitt á Pétursey, Vík og í Meðallandsbugt. Veiðin var ekkert alltof góð. Þá héldum við austur á Höfða og þar var fínasta veiði, mest þorskur og svolítil ýsa með,“ sagði Birgir Þór.

Létt yfir mönnum enda vertíð framundan

Jón Valgeirsson á Bergi sagði að nú væri vertíðin rétt að byrja.

„Við lönduðum um 50 tonnum í Þorlákshöfn á laugardaginn eftir að hafa verið sólarhring að veiðum. Í þeim stutta túr fékkst mest þorskur og ufsi. Eftir löndun var haldið rakleiðis í Meðallandsbugtina og reynt við ýsu. Þar var sæmilegasta kropp. Síðan lá leiðin á Ingólfshöfðann og þar fylltum við skipið af vænum þorski en með honum fékkst dálítil ýsa. Á Höfðanum stoppuðum við einungis í 12 tíma. Það er létt yfir mönnum enda vertíð framundan,“ sagði Jón.

Bergur hélt til veiða á ný um miðnætti og Vestmannaey í morgun.

Nýjustu fréttir

Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.