Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum hyggst í sumar undirbúa og jafnvel hefja tilraunaveiðar á humri í gildrur. Humarinn yrði síðan fluttur lifandi úr landi og boðinn viðskiptavinum á veitingahúsum, væntanlega að mestu á meginlandi Evrópu til að byrja með.
Humarkvóti er í sögulegu lágmarki og kom fram í ræðu sem Guðmundur Örn Gunnarsson, stjórnarformaður VSV, flutti á aðalfundi félagsins í lok síðasta mánaðar að þetta væri m.a. gert til að bregðast við samdrættinum.
Fyrir tæpum tíu árum gerði Vinnslustöðin tilraunir með gildruveiðar. Þær gengu þokkalega „en við hvorki þekktum mikið til tilheyrandi markaðsmála né höfðum nægilega góð tengsl við markaðinn,“ sagði Guðmundur í ræðu sinni.
Í umfjöllun um áform þessi í Morgunblaðinu á dögunum sagði Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri, að þessar veiðar yrðu fyrst og fremst í tilraunaskyni. Fyrirtækið eigi humargildrur, en það sé ekki nóg að koma þeim fyrir á líklegum stöðum.
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur…