Tólf miljónir til Sagnheima
Gígja safnstjóri Sagnheima (til hægri), ásamt Önnu Kristínu skrifstofustjóra ráðuneytis og Þóru frá Safnaráði

Logi Einarsson, menningaráðherra, hefur úthlutað styrkjum úr Safnasjóði fyrir árið 2026 að fenginni umsögn Safnaráðs. Kemur þetta fram á vef Vestmannaeyjabæjar.

,,Úthlutunarboð Safnaráðs fór fram í Myndasal Þjóðminjasafns Íslands fyrr í þessum mánuði og þar gerði Arna Kristín Einarsdóttir, skrifstofustjóri menningar og skapandi greina í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu grein fyrir úthlutun ársins. 

Alls var úthlutað 131 styrk að heildarupphæð 182,7 milljónum króna.

Sagnheimar hlutu samtals 12 milljónir króna í styrki úr sjóðnum. Þar af fékk safnið í fyrsta sinn svokallaðan öndvegisstyrk að upphæð 8 milljónir króna, en aðeins átta söfn á landinu fengu slíkan styrk í ár.

Öndvegisstyrkurinn er veittur til tveggja ára og mun nýtast við undirbúning nýrrar sýningar um Tyrkjaránið en á næsta ári verða liðin 400 ár frá þeim mikla atburði.

Auk þess fékk safnið tvo eins árs styrki. Annars vegar til skráningar safnmuna í gagnagrunninn Sarp og hins vegar til skipulagningar á varðveislurými safnsins við Tangagötu.”

Alls var úthlutað 131 styrk

Nýjustu fréttir

„Við erum ótrúlega stolt af ykkur“
Mikill ferðamannastraumur um helgina – myndband
Heimir og Særún heilluðust af Vestmannaeyjum
Glæsilegu TM móti lokið – Þróttur R. varð TM móts meistari
ÍBV getur farið upp fyrir Þór
Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.
Lokadagur TM-mótsins: Gleði, keppni og ógleymanlegar minningar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.