Toppslagur í Keflavík
Eyja ÍBV ÍR 3L2A5647
Barátta um boltann. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson

Tuttugasta umferð Lengjudeildar karla hófst í gærkvöldi með jafnteflisleik Grindavíkur og Þróttar R. Í dag eru svo tveir leikir. Í fyrri leik dagsins tekur Keflavík á móti ÍBV.  Liðin eru bæði í toppbaráttu. ÍBV á toppnum með 35 stig en Keflvíkingar eru í fjórða sæti 4 stigum á eftir Eyjaliðinu.

Bæði þessi lið töpuðu leikjum sínum í síðustu umferð. ÍBV lá á heimavelli gegn Aftureldingu og Keflvíkingar töpuðu gegn Þrótti. Fyrri leikur ÍBV og Keflavíkur endaði með stórsigri ÍBV 5-0 á Hásteinsvelli. Aðeins eru þrjár umferðir eftir af Lengjudeildinni og er mikil spenna fyrir lokasprettinum. Flautað er til leiks klukkan 17.30 í Keflavík í dag.

Leikir dagsins:

Lengja Kk 300824

Nýjustu fréttir

Elliði maður leiksins og Ísland í undanúrslit
Beðið með eftirvæntingu eftir loðnuráðgjöf
KR-ingur á láni til ÍBV
Elliði Snær skoraði átta mörk í jafntefli Íslands
Fylgi flokkanna í Eyjum
Komu inn vegna veðurs
Afslættir hverfa með bættu raforkuöryggi
Jason Stefánsson meðal útskriftarnema FÍV 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.