Tvö smit greindust í eigin veiruprófum Vinnslustöðvarinnar meðal starfsmanna
18. ágúst, 2021

Tvö COVID-smit hafa greinst undanfarna daga í eigin veiruprófum Vinnslustöðvarinnar meðal starfsmanna, annað í VSV en hitt í þjónustufyrirtækinu Hafnareyri ehf., dótturfélagi VSV. Niðurstöðurnar voru í báðum tilvikum staðfestar á heilsugæslunni með PCR-prófum.

„Við höfum tekið á sjöunda tug prófa hjá okkur og starfsmennirnir lýsa mikilli ánægju með að þetta sé yfirleitt gert og hvernig að málum sé staðið. Prófin eru auðveld í framkvæmd og við fengum leiðbeiningar fagfólks um hvernig við skyldum bera okkur að,“ segir Trausti Hjaltason, framkvæmdastjóri Hafnareyrar.

„Starfmenn Hafnareyrar, sem fóru í helgarfrí á föstudaginn var, tóku til að mynda tilheyrandi gögn með sér heim og prófuðu sjálfa sig áður en þeir mættu til vinnu aftur að morgni mánudags.

Prófin koma ekki í stað PCR-prófanna og eftir sem áður hvetjum við því starfsmenn til að snúa sér beint til heilsugæslunnar finni þeir til sjúkdómseinkenna. Eigin próf okkar eru hins vegar mikilvægt vopn í baráttunni við veiruna. Þau gera fólkið enn meðvitaðra um að undir okkur sjálfum komið að standa saman og berjast sem ein heild fyrir því að halda veirunni frá fyrirtækinu.“

Lilja Björg Arngrímsdóttir starfsmannastjóri segir að veiruprófin í Vinnslustöðinni séu alls orðin hátt í 300 talsins í skipum og í landi:

„Prófin eru einföld, fljótleg og þægileg öryggisráðstöfun sem ég heyri að mælist vel fyrir meðal starfsmanna. Þá hef ég sjálf tekið á förnum vegi við hrósi fyrir hönd fyrirtækisins frá fjölskyldum starfsmanna Vinnslustöðvarinnar fyrir veiruprófin. Fólk skynjar nefnilega sterklega að þegar við reynum að slá heilbrigðisskjaldborg um starfsfólkið njóta fjölskyldur þess og nánir aðstandendur góðs af því líka. Baráttan okkar varðar allt samfélagið í Vestmannaeyjum.“

Sigurgeir B. Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, tekur undir þetta og bætir við:

„Reynslan sýnir að okkur er treystandi til að prófa starfsmennina og okkur sjálf. Reynslan sýnir líka að prófin virka. Við eigum mikið undir því að verja starfsemina og halda rekstrinum gangandi áfallalaust.“

Trausti Hjaltason tók þessar myndir í dag af tveimur starfsmönnum á verkstæði Hafnareyrar veiruprófa sig í kaffistofunni. Þeir heita Arnar Berg Arnarsson og Arnar Gauti Egilsson. Jákvæðir og glaðbeittir strákar í daglegri tilveru en gjörsamlega neikvæðir í COVID-prófinu!

 

Þess má geta að nánar er rætt við Lilju Björk í næsta tölublaði Eyjafrétta sem dreift verður á morgun fimmtudag.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst