Tyrkjaránsganga Sögusetursins 1627
Ljósmynd/aðsend.

Laugardaginn 18. júlí nk.  kl. 13 stendur Sögusetrið 1627 fyrir Tyrkjaránsgöngu. Í ár eru liðin 399 ár frá Tyrkjaráninu illræmda þegar ránsmenn frá Alsír í Norður- Afríku gengu á land í Vestmannaeyjum, drápu, særðu, rupluðu og tóku til fanga liðlega helming íbúa Vestmannaeyja. Ræningjarnir fluttu hátt á þriðja hundruð Eyjamenn til Alsír og seldu þá þar í þrældóm. Fullyrða má að þessi atburður sé einn þeirra sem haft hefur hvað mest áhrif byggð í Vestmannaeyjum, búsetu og daglegt líf Eyjamanna.

Sögusetrið 1627 er félag sem hefur m.a. það markmið að varðveita og halda á lofti sögu Tyrkjaránsins en einnig öðrum þáttum úr sögu og menningu Vestmannaeyja. Gangan á laugardag er einn liður í starfsemi félagsins.

Gangan hefst við Landakirkju þar sem safnast verður saman og henni lýkur á Skansinum þar sem göngufólki verður boðið upp á hressingu.

Gangan er ekki erfið, fyrir fólk á öllum og tekur um eina klukkustund. Gönguleiðin verður þessi:

Landakirkja – Við kirkjugarðinn – Minnismerki um Guðríði Símonardóttur – Skansinn.

Á ofangreindum stöðum verður staldrað við og þættir úr sögu Tyrkjaránsins rifjaðir upp.

Göngustjóri: Ragnar Óskarsson

 

Sögusetrið 1627

Nýjustu fréttir

Tyrkjaránsganga Sögusetursins 1627
Einn túr eftir fyrir sumarstopp
NovaFest á Vöruhúsinu á Þjóðhátíð
ÍBV tekur á móti Val í kvöld
Rafmótorinn tilbúinn – Herjólfur úr áætlun í allt að fjóra sólarhringa
Óboðnir gestir undir yfirborðinu
Níu lið frá ÍBV tóku þátt í Símamótinu
Heimsfaraldur á fjögurra ára fresti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.