Umsókn um 120 herbergja hótel í Hásteinsgryfju fer til bæjarráðs
Tölvugerð mynd sem fylgdi erindinu.

Erindi um mögulega uppbyggingu 120 herbergja hótels í Hásteinsgryfju var tekið fyrir á fundi skipulags- og umhverfisráðs Vestmannaeyja.

Það er Þröstur B. Johnsen sem sækir um að fá landi úthlutað fyrir uppbyggingu hótels á svæðinu. Með erindinu fylgdu myndir af mögulegu útliti hótelsins auk afrits af deiliskipulagi íþróttasvæðisins við Hástein þar sem gert er ráð fyrir hótellóð í Hásteinsgryfju.

Í niðurstöðu skipulags- og umhverfisráðs kemur fram að um sé að ræða lóð sem sé ekki til úthlutunar eins og staðan er í dag. Af þeim sökum hafi ráðið ekki heimild til að afgreiða erindið sjálft og sé því málinu vísað áfram til bæjarráðs til frekari meðferðar.

Hásteinsgryfja hefur um árabil verið til umræðu sem mögulegt uppbyggingarsvæði og samkvæmt deiliskipulagi er þar gert ráð fyrir hótelstarfsemi. Fyrirhugað hótel yrði með um 120 herbergjum ef af framkvæmdinni verður.

Nýjustu fréttir

Alexandra Ósk – Þetta líður miklu hraðar en þú heldur
Vilja að hafinn verði undirbúningur að smíði nýrrar ferju
ÍBV sækir Víking heim á morgun
Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun
Meistaramót GV hefst á morgun
Ölduhæð raskar samgöngum – aðeins ein ferð farin það sem af er deginum
Myndasyrpa frá göngumessu
Myndband | 16 ára Eyjakona stefnir hátt í rallýcrossi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.