Ungir yfirmenn í áhöfn í Breka
Gísli Matthías og Ríkarð

Breki VE kom til hafnar í gærmorgun (þriðjudag 8. september) með 440 kör af góðum afla eftir veiðiferð þar sem rólegt var framan af og bræla en endaði vel í lokin á Þórsbanka.

Tíðindum sætir að Gísli Matthías Sigmarsson var í fyrsta sinn yfirvélstjóri á togaranum og í sama túr var Ríkarður Magnússon yfirstýrimaður. Þeir félagar eru meðal yngstu yfirmanna í flota Vinnslustöðvarinnar og þarna banka því fulltrúar yngri kynslóða á dyr þeirra eldri (og reyndari!) á sínum fagsviðum.

Gísli Matthías útskrifaðist úr vélfræðinámi 2015, hefur verið á hinum og þessum bátum í Eyjum, eina loðnuvertíð á Sighvati Bjarnasyni VE og síðan 1. vélstjóri á Breka frá því í október 2018. Með sér í fyrsta túr yfirvélstjóra hafði hann mann með mikla reynslu og þekkingu, Finn Kristinsson vélfræðing og yfirvélstjóra á Breka. Finnur dvaldi í Kína forðum og var yfireftirlitsmaður með smíði Breka VE og Páls Pálssonar ÍS fyrir hönd Vinnslustöðvarinnar og Hraðfrystihússins Gunnvar í Hnífsdal. Finnur var áhöfn Breka á heimleið frá Kína.

Ríkarður Magnússon var líka í áhöfn Breka heim frá Kína, þá  2. stýrimaður skipsins. Hann er nú 1. stýrimaður og hefur leyst af sem yfirstýrimaður.

Ríkarð í brú Breka á heimleið frá Kína 2018

Ríkarður er sonur Magnúsar skipstjóra á Breka og þeir feðgar voru áður samtímis á Drangavík VE. Þar var Ríkarður stýrimaður en leysti föður sinn af sem skipstjóri þegar Magnús fór að sinna Brekamálum hér heima og í kínversku skipasmíðastöðinni.

Ríkarð og Gísli Matthías

Nýjustu fréttir

Eyjasamfélagið heillaði mig strax
Milan Tomic framlengir við ÍBV
Dreymir um að verða lögreglumaður
Þarf kjark til að fara á karlaráðstefnu?
Hákon hlakkar mest til að læra sund
Trúfesti Guðs rauði þráðurinn í 100 ára sögu
Binni Þór gerir tveggja ára samning við ÍBV
Mikill spenningur fyrir komandi tímabili
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.