Verkefnastjóri öldrunarþjónustu og framkvæmdastjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs kynntu stöðu öldrunarþjónustu Verstmannaeyjabæjar á síðasta fundi fjölskyldu- og tómstundaráðs Vestmannaeyja.
Fram kemur í fundargerð að verkefni þjónustunnar sé í stöðugri þróun. Unnið er að aðgerðaráætlun þar sem skerpt er á þjónustunni og áherslum hennar. Um 145 þjónustuþegar nýta stuðningsþjónustu og 51 fá að jafnaði heimsendan mat. Vestmannaeyjabær leigir 9 þjónustuíbúðir og 32 leiguíbúðir fyrir aldraða.
Í dagdvölinni Bjarginu eru 28 þjónustuþegar eða um 19 að meðaltali á dag. Öldrunarþjónustan leggur áherslu á að nýta velferðartæknina til að efla og auka þjónustu. Nýtt heimaþjónustukerfi DalaCare er eitt af þeim kerfum sem auka skilvirkni og tímasparnað. Verkefni sem hafa verið í gangi eru m.a. Janus heilsuefling, Brúkum bekki, Karlar í skúrnum, Bjartur lífstíll o.fl.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst