Félagsfundur Sósíalistaflokksins samþykkti í gærkvöld oddvita listans í Suðurkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar. Oddviti listans er Unnur Rán Reynisdóttir, hársnyrtir og hársnyrtikennari. Þá var listinn fyrir Suðurkjördæmi einnig samþykktur í heild sinni, segir í tilkynningu frá flokknum.
Unnur Rán er fjögurra barna móðir, búsett í Reykjanesbæ en uppalin á Flúðum í Hrunamannahrepp. Unnur Rán vinnur á umhverfisvottuðu hársnyrtistofunni Zenz Reykjavík og hefur einnig starfað innan verkalýðshreyfingarinnar á árum áður og unnið af krafti í þágu umhverfis- og vinnuverndarmála á þeim vettvangi, setið í stjórn Félags Hársnyrtisveina og ASÍ-Ung. Unnur Rán berst gegn ójöfnuði í samfélaginu. Henni eru sérstaklega hugleikin málefni barna og jaðarsettra hópa í samfélaginu, þar sem aukinn ójöfnuður leiðir af sér enn fleiri vandamál.
„Engin manneskja á að þurfa að leita á náðir hjálparstofnanna til að geta gefið börnum sínum að borða, til að geta haldið jól eða til þess að börn geti tekið þátt í frístundum. Þau þungu skref á engin manneskja að þurfa að taka, heldur ættum við öll að geta lifað mannsæmandi lífi. Það að taka þátt í samfélaginu á ekki að einskorðast við stétt, uppruna, heilsu eða fjárhag. Hvort sem um ræðir börn eða fullorðna þá eigum við öll að geta fengið að blómstra,“ segir Unnur, oftast kölluð Rán.
„Uppræta þarf ójöfnuðinn í stað þess að plásta það sem ekki virki, þrátt fyrir að þakka megi góðgerðarstofnunum þeirra fallega starf þá ættum við ekki að neyðast til að senda fólk þessa bónarleið sem er eingöngu tilkomin vegna misskiptingar í samfélaginu. Núverandi ölmusukerfi er til þess fallið að þau sem eiga fjármagnið nú þegar geta klappað sjálfum sér á bakið þegar þau gera hin miklu góðverk að styrkja þau sem minna eiga. Þetta er kapítalisminn í sinni tærustu mynd og hann leiðir til enn frekari vandamála.”
Listinn í heild sinni er þannig skipaður:
1. Unnur Rán Reynisdóttir, 41 árs, Hársnyrtimeistari/kennari
2. Hallfríður Þórarinsdóttir, 64 ára, Framkvæmdastjóri
3. Arnar Páll Gunnlaugsson 35 ára Bifvélavirki
4. Þórdís Bjarnleifsdóttir, 53 ára, Nemi
5. Sigurrós Eggertsdóttir, 27 ára, Háskólanemi/fjöllistakona
6. Ægir Máni Bjarnason, 31 árs, Félagsliði/listamaður
7. Ólafur Högni Ólafsson 47 ára, Fyrverandi fángavörður
8. Elínborg Steinunnardóttir/Björnsdóttir, 51 árs,Bráðatæknir/öryrki
9. Þórbergur Torfason, 70 ára, Ferðaþjónustubóndi
10. Vania Cristina Leite Lopes 41 árs, Félagsliði
11. Bjarni Þór Þórarinsson, 67 ára, Ráðgjafi
12. Arngrímur Jónsson, 64 ára, sjómaður
13. Kári Jónsson, 65 ára, verkamaður/öryrki
14. Magnús Halldórsson, 70 ára, Skáld
15. Hildur Vera Sæmundsdóttir, 63 ára, sjálfstætt starfandi
16. Pawel Adam Lopatka, 40 ára, landvörður
17. Stefán Helgi Helgason, 65 ára, Öryrki
18. Guðmundur Jón Erlendsson, 59 ára, Bílstjóri/öryrki
19. Þórir Hans Svarsson 58 ára
20. Gunnar Þór Jónsson 77 ára,




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.