Unnur vann 14 titla sem þjálfari hjá ÍBV
Unnur og Hlynur. Myndina tók Sigurgeir 28. febrúar 1999 þegar Hlynur var valinn Íþróttamaður ársins.

Hjónin Unnur Björg Sigmarsdóttir og Hlynur Stefánsson hlutu Fréttapýramídann 2024 fyrir mikið og gott starf í þágu íþróttanna í Eyjum. Hún í handbolta og hann í fótbolta. Unnur spilaði handbolta frá árinu 1983- 1992 í meistaraflokki en á árum áður í yngri flokkum með Tý. Eftir að fjölskyldan flutti til Svíþjóðar spilaði hún þar með 1. deildar liði IFK Örebro.

Þau fluttu heim árið 1996 og spilaði Unnur þá til ársins 1999 og hætti svo árið sem kvennalið ÍBV var fyrsta skipti Íslandsmeistari. Þá var hún komin í handknattleiksráð.

Unnur byrjaði í þjálfun 16 ára gömul og þjálfaði í 30 ár hjá félaginu. Árið 2010 þjálfaði hún 7 flokka hjá félaginu ásamt því að vera í fullri vinnu með 3 börn og fékk hún sérstaka viðurkenningu fyrir það á lokahófi félagsins.

Hún þjálfaði 16 ára landslið kvenna í handbolta árið 2012.

Sem þjálfari hefur Unnur Björg unnið 14 titla, þar af þrjá titla sem þjálfari meistaraflokks kvenna hjá ÍBV, árið 2003: Meistarar meistaranna, deildarmeistaratitil og Íslandsmeistaratitil. Unnur sat  í aðalstjórn ÍBV. Hún hefur setið í handboltaráði ÍBV í fjölda ára, var formaður Fimleikafélagsins Ránar í átta ár og hefur sinnt mikilli sjálfboðavinnu fyrir sitt íþróttafélag og fjölda annarra félagsstarfa í gegnum tíðina. Unnur var sæmd gullmerki ÍBV og heiðursviðurkenningu ÍBV árið 2016 og einnig fengið starfsmerki FSÍ.

Unnur er hvergi nærri hætt og starfar enn þann dag í dag í heimaleikjaráði handboltans. Þá er hún liðsstjóri í sveit Golfklúbbs Vestmannaeyja 50+ kvenna og þar hafa þær unnið tvo titla. Unnur og Hlynur spila golf eins oft og þau geta.  Þau eiga 3 börn og 5 barnabörn.

Nýjustu fréttir

„Þær halda utan um hjartað í Hljómey“ 
Skólamál og ábyrgð í opinberri umræðu
Eyjamenn með stórsigur í Suðurlandsslagnum
Eyjarnar landa í Eyjum í dag
Útför: Þórunn Pálsdóttir
Frá mjólkurkælinum til verslunarstjóra
Herjólfur slær met 
Aglow samvera í kvöld
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.