Uppskeruhátíð sumarlesturs fer nú loksins fram aftur eftir kórónuveiruhlé og verður haldin hátíðleg á Bókasafni Vestmannaeyja, mánudaginn 29. ágúst kl. 15-16.
Þema sumarlesturs í ár var himingeimurinn og mun Stjörnu-Sævar mæta á svæðið og halda fræðslu.
Dregið verður úr happdrætti úr stjörnum sem börn hafa skilað inn fyrir hverja lesna bók.
Verðlaun verða veitt fyrir þátttöku og öll börn sem koma á uppskeruhátíðina fá glaðning.
Öll börn eru velkomin, líka þau sem voru ekki virk við sumarlesturinn.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bókasafninu.
Myndin er ú safni: Bergrún Íris, rithöfundur, kynnir bækur sínar fyrir áhugasömum börnum á bókasafninu.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst