Vann rúmar 4,8 milljónir – rétt eftir að bíllinn bilaði
Lotto
Stóri vinningurinn kemur sér svo sannarlega vel.

Það má með sanni segja að heppnin hafi verið með ungum fjölskylduföður sem hreppti 3-faldan al-íslenskan 3. vinning í Vikinglotto í gærkvöldi – vinning upp á rúmar 4,8 milljónir króna.

Dagurinn hófst ekki vel: bíll fjölskyldunnar var á verkstæði og símtal frá þeim staðfesti versta ótta – bíllinn þurfti nýja vél. „Ég sagði í hálfkæringi að nú þyrfti ég bara að vinna í lottó,“ sagði miðahafinn og ákvað að kaupa sér miða í Vikinglotto.

Og það reyndist heldur betur rétt ákvörðun – miðinn var vinningsmiði!

Fjölskyldan ætlar að nota vinninginn til að redda bílnum, lækka skuldir og gleðja börnin með einhverju fallegu – hugsanlega nýjum hjólum, segir í tilkynningu frá Íslenskri Getspá.

Nýjustu fréttir

Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Strangar kröfur í útboði heilsuræktar vekja ágreining í bæjarstjórn
Davíð Oddsson fallinn frá
ÍBV strákarnir urðu einnig Powerade bikarmeistarar í 3. flokki
Dýpið mælt í Landeyjahöfn
ÍBV Powerade bikarmeistari í 3. flokki kvenna
Mars heilsar með frosti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.