Vara við áhrifum fjárlagafrumvarps á heimili og velferðarkerfi
Althingishus Tms Cr 2
Alþingi Íslendinga. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Alþýðusamband Íslands gerir alvarlegar athugasemdir við áform ríkisstjórnarinnar um niðurskurð eins og þau birtast í fjárlagafrumvarpi komandi árs. Þetta kemur fram í ítarlegri umsögn ASÍ um frumvarpið, þar sem sambandið lýsir áhyggjum af áhrifum aðgerðanna á heimili landsins og velferðarkerfið í heild.

Niðurskurður bitnar á veikustu hópunum

Í umsögninni er vakin athygli á svonefndum „hagræðingaraðgerðum“ sem fela í sér verulegar skerðingar:

  • Framlag til jöfnunar á örorkubyrði lífeyrissjóða verður afnumið.

  • Bótatímabil atvinnuleysistrygginga styttist um 12 mánuði og reglur um ávinnslu verða þrengdar.

  • Fjárhæðir í barnabótum og húsnæðis- og vaxtabótum haldast óbreyttar, sem þýðir rýrnun að raungildi.

  • Sérstakar aðhaldsráðstafanir í heilbrigðiskerfinu nema 3,8 milljörðum og aukin kostnaðarþátttaka sjúklinga er fyrirhuguð.

  • Lækkun verður á framlögum til framhaldsfræðslu og íslenskukennslu.

ASÍ bendir á að slíkar aðgerðir bitni helst á tekjulægri heimilum og grafi undan jöfnuði.

Áhyggjur af efnahagsstefnu og verðbólgu

ASÍ lýsir einnig áhyggjum af efnahagsþróun og viðsnúningi í hagkerfinu. Minnt er á að meginmarkmið stöðugleikasamninganna árið 2024 hafi verið að stuðla að verðstöðugleika og skapa forsendur til vaxtalækkana.

Þrátt fyrir að verðbólga hafi lækkað að einhverju marki sé hún enn of há, ekki síst vegna aðstæðna á húsnæðismarkaði. „Hér þurfa stjórnvöld að grípa til raunverulegra aðgerða,“ segir í umsögninni.

„Stjórnvöld bera ríka ábyrgð á að stuðla að verðstöðugleika, hvort sem er með opinberum fjármálum, hófsemi í gjaldskrárhækkunum eða með því að tryggja að kerfislægir þættir ýti ekki undir verðbólgu. Þar má nefna miklar hækkanir á raforkuverði til heimila og fyrirtækja. Jafnframt er ástæða til að gagnrýna sveitarfélög fyrir að standa ekki við loforð um hófsemi í gjaldskrárhækkunum og tryggja framboð byggingarhæfra lóða.“

Skattahækkanir og kílómetragjald

Í umsögninni kemur fram að samanlagt umfang skattbreytinga nemi 27,9 milljörðum króna árið 2026. Þar vegi þyngst breytingar á veiðigjöldum, kílómetragjaldi og heimildum til samnýtingar skattþrepa.

ASÍ ítrekar gagnrýni sína á kílómetragjaldið og varar við verðbólguáhrifum þess:

„Stjórnvöld ganga út frá því að olíufélög lækki verð til samræmis við afnám gjalda. Slíkt er ekki tryggt, og virðast stjórnvöld ekki ætla að fylgja því eftir eða vakta hvort það raungerist.“

Sambandið bendir á að samkeppni á eldsneytismarkaði sé ófullnægjandi og að breytingarnar geti í raun hækkað heildarkostnað neytenda.

Sparnaðartillaga í dulargervi umbóta

ASÍ gagnrýnir jafnframt skort á samráði um breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar.

„Samhliða breytingunum er ekki áformað að auka fjármagn til vinnumarkaðsúrræða – því er um að ræða hreina sparnaðartillögu,“ segir í umsögninni.

ASÍ leggur áherslu á að atvinnuleysistryggingakerfið eigi að styðja við virkni og endurkomu á vinnumarkað, en ekki að draga úr stuðningi við þá sem missa vinnu.

Umsögn Alþýðusambands Íslands í heild má nálgast á heimasíðu ASÍ.

Nýjustu fréttir

Díana Dögg og Andrea munu leika til úrslita um þýska meistaratitilinn
Könnunarveiðar á humri fara vel af stað
Bókunarkerfið enn niðri – Herjólfur birtir nýja áætlun
Áform um fjögurra hæða byggingu við Strandveg
Vopnaður maður handtekinn í aðgerð sérsveitar
Bilun í Álfsnesinu tefur dýpkun
Eyjakonur mæta með bakið upp við vegg
Mæðradagurinn haldinn hátíðlegur í Landakirkju
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.