Veiðráðgjöf loðnu lækkar
Af loðnumiðunum Mynd: Óttar Steingrímsson

Hafrannsóknastofnun ráðleggur að loðnuafli veturinn 2022/2023 verði ekki meiri en 218.400 tonn. Ráðgjöfin kemur í stað upphafsráðgjafar upp á 400 000 tonn sem byggði á magni ókynþroska loðnu í haustmælingum 2021. Ráðgjöfin verður endurskoðuð að loknum mælingum Hafrannsóknastofnunar á stærð veiðistofnsins í janúar/febrúar eins og aflaregla strandríkja fyrir stofninn gerir ráð fyrir.

Hlekkur á ráðgjöf.

Þessi endurskoðaða ráðgjöf byggir á niðurstöðum bergmálsmælinga á loðnustofninum á rannsóknaskipunum Árna Friðrikssyni og Tarajoq á tímabilinu 27. ágúst til 29. September (mynd). Um var að ræða umfangsmikla yfirferð og urðu litlar tafir vegna veðurs.

Hafís takmarkaði yfirferð nyrst á rannsóknasvæðinu, en ekki er talið líklegt að loðna hafi verið á svæðinu sem var sleppt. Stofnmælingin hafði fremur lágan breytileikastuðul (CV=0.2) þar sem loðnan var nokkuð jafnt dreifð auk þess sem almennt var mest af kynþroska loðnu á svæðum með þétta yfirferð.

Heildarmagn loðnu mældist tæp 1,1 tonn og þar af var stærð hrygningarstofns metin 763 þúsund tonn. Magn ókynþroska í fjölda var um 41 milljarðar en samkvæmt samþykktri aflareglu þarf yfir 50 milljarða til að mælt verði með upphafsaflamarki fiskveiðiársins 2023/2024. Gögn um niðurstöður ungloðnumælinganna verða lögð fyrir Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) sem mun veita ráð um upphafsaflamark vertíðarinnar 2023/2024 seinna í haust.

Nýjustu fréttir

Sigurjón bjargaði fjórum áhöfnum
Leik ÍBV og FH í Bestu deildinni flýtt
Matthías Harðarson með tónleika í Hallgrímskirkju
Tæplega níræður Eyjamaður með 13 rétta
Samið við Jan De Nul um dýpkun Landeyjahafnar
Gul viðvörun: Suðaustan hríð
Drífum í þessu svo við þurfum ekki að borga!
Stór viðbygging við Íþróttamiðstöðina í útboð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.