Vélstjórar slíta viðræðum við SFS

Fé­lag vél­stjóra og málm­tækni­manna (VM) og Sjó­manna og vél­stjóra­fé­lag Grinda­vík­ur (SVG) hafa ákveðið að slíta kjara­samn­ingsviðræðum við Sam­tök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS). Vélstjórar felldu sem kunnugt er kjarasamning sem borinn var undir atkvæði í vor.

Þráðurinn var tekinn upp að nýju í haust. Á síðustu fundum hafa viðræður að mestu snúist um tímakaup vélstjóra í landi. Að loknum síðasta fundi aðila, sem haldinn var á þriðjudag, lýstu fulltrúar launamanna yfir árangursleysi.

“Það eru mikil vonbrigði að vilji útgerðarmanna til að leiðrétta laun vélstjóra þegar skipin eru bundin við bryggju sé ekki meiri en raun ber vitni. Laun þeirra hafa staðið í stað frá árinu 2019. Á þessum tíma hefur verðlag í landinu hækkað um 43%. Samninganefnd VM mun nú ráða ráðum sínum og ráðfæra sig við félagsmenn sína um næstu skref,” segir í tilkynningu á vef VM.

Nýjustu fréttir

Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Athugasemd
Dísa leiðir Eyjalistann
Kvenfélagið Líkn færði HSU veglega gjöf
Loðnan tengir saman Vestmannaeyjar og Japan
Listir og menning í Framhaldsskóla Vestmannaeyja
Lestur ársreiknings bæjarins gefur allt aðra mynd
Ísólfur Gylfi – 42 ár frá Helliseyjarslysinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.