Ísfisktogarar Bergs-Hugins, Vestmannaey VE og Bergey VE, lönduðu báðir fullfermi í Eyjum á mánudagsmorgun. Skipin héldu til veiða síðdegis á laugardag þannig að það fiskaðist vel. Heimasíðan ræddi stuttlega við Birgi Þór Sverrisson skipstjóra á Vestmannaey og spurði hvar skipin hefðu verið að veiðum. „Við byrjuðum upp við Surtsey í þorski og síðan var haldið vestast á Selvogsbankann í ýsu. Það fiskaðist afar vel allan túrinn og fiskurinn sem fékkst var góður. Nú er komið að vertíðarlokum og markaðsaðstæður ráða því að hægt er á sókninni. Við förum líklega ekki út aftur fyrr en á laugardag. Vertíðin hefur einkennst af tvennu; brælum og þessu covidástandi. Bæði brælurnar og ástandið hafa orsakað það að skipin hafa ekki verið rekin á fullum afköstum. Það hefur aftur á móti gengið vel að veiða helstu tegundirnar. Ég held að lengsti túrinn okkar hafi verið þrír dagar. Tíðarfarið hefur verið heldur leiðinlegt en maður hefur séð það verra,“ segir Birgir Þór.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.