Vertíðin einkennst af brælum og covidástandi

Ísfisktogarar Bergs-Hugins, Vestmannaey VE og Bergey VE, lönduðu báðir fullfermi í Eyjum á mánudagsmorgun. Skipin héldu til veiða síðdegis á laugardag þannig að það fiskaðist vel. Heimasíðan ræddi stuttlega við Birgi Þór Sverrisson skipstjóra á Vestmannaey og spurði hvar skipin hefðu verið að veiðum.  „Við byrjuðum upp við Surtsey í þorski og síðan var haldið vestast á Selvogsbankann í ýsu. Það fiskaðist afar vel allan túrinn og fiskurinn sem fékkst var góður. Nú er komið að vertíðarlokum og markaðsaðstæður ráða því að hægt er á sókninni. Við förum líklega ekki út aftur fyrr en á laugardag. Vertíðin hefur einkennst af tvennu; brælum og þessu covidástandi. Bæði brælurnar og ástandið hafa orsakað það að skipin hafa ekki verið rekin á fullum afköstum. Það hefur aftur á móti gengið vel að veiða helstu tegundirnar. Ég held að lengsti túrinn okkar hafi verið þrír dagar. Tíðarfarið hefur verið heldur leiðinlegt en maður hefur séð það verra,“ segir Birgir Þór.

svn.is

Nýjustu fréttir

Þrír af okkar fremstu söngvurum syngja í Eldheimum
Komnir í þriggja vikna stopp: „Menn njóta þess í botn”
Frumraun Ennisrakaðra á spænsku
Þegar siðareglum er beitt til að forðast umræðu
Goslok: dagskrá föstudags
Fyrsta tölublað Eyjafrétta sem kemur eingöngu út á vefnum
Þórir Baldursson í Eldheimum í kvöld
Umferðin tók vel við sér í júní
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.