Víðir til liðs við ÍBV
Víðir Þorvarðarson. Ljósmynd/ÍBV

Eyjamaðurinn Víðir Þorvarðarson hefur skrifað undir eins árs samning við knattspyrnudeild ÍBV en hann kemur til með að leika með liðinu í Lengjudeild karla í sumar, næst á dagskrá er þó Lengjubikarinn sem hefst á morgun með leik gegn Valsmönnum í Egilshöllinni. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu ÍBV.

Víði þekkja allir Eyjamenn en hann hefur leikið fjölmarga leiki með ÍBV í yngri flokkum og meistaraflokki. Samtals á Víðir 295 meistaraflokksleiki fyrir ÍBV, Fylki, Stjörnuna, Þrótt R. og KFS, í þeim hefur hann skorað 65 mörk. Flestir eru leikir hans í efstu deild en þeir eru 140 og þar hefur hann skorað 22 mörk. Víðir var meðal annars hluti af sterku liði ÍBV 2012 sem endaði í 3. sæti Pepsi-deildarinnar.

Reynsla Víðis á eflaust eftir að reynast ÍBV vel í sumar og býður knattspyrnuráð Víði velkominn til félagsins á nýjan leik.

Nýjustu fréttir

Jón Þór leiðir lista Miðflokksins – Sæunn er bæjarstjóraefnið
Fyrri ferð föstudags felld niður
Elliði Snær markahæstur gegn Svíum
Laxey á Seafood Expo North America
Trúin og andlegt starf styrkur í sorginni
Heimir heldur áfram með Írland – samningur til 2028
Vatn loksins farið að renna í laugina
Eyjalistinn tilbúinn – Miðflokkurinn kynnir sinn lista í kvöld
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.