Vilhjálmur Árnason - Hver mínúta skiptir máli
Fyrir stuttu kynntum við Styrmir Sigurðarson hugmyndir um nýjar og betri leiðir í utanspítalaþjónustu með sérhæfðum sjúkraþyrlum á fjölmennum fundi í Vestmannaeyjum. Vegna íbúafjölgunar, fjölgunar ferðamanna og aukinnar sérhæfingar í heilbrigðisþjónustunni, sem virðist ekki vera hægt að sinna annarsstaðar en á höfuðborgarsvæðinu, er nauðsynlegt að bregðast við með því að koma sérhæfðri aðstoð sem fyrst til okkar út á land.
Heilbrigðisráðherra gefur hugmyndinni byr undir báða vængi
Síðan fundurinn var hefur mikið vatn runnið til sjávar. Við höfum til að mynda fundið fyrir mikilli hvatningu og góðum viðbrögðum en hugmyndin um sjúkraþyrluna hefur fengið afar jákvæðar viðtökur. Fjöldi aðila hefur haft samband við okkur og skiptast á upplýsingum til að fleyta málinu áfram. �?á var enn fremur fagnaðarefni þegar heilbrigðisráðherra ákvað að veita fjármagni í að gera frekari úttekt og kynningu á málinu. �?annig má segja að heilbrigðisráðherra hafi gefið hugmyndinni byr undir báða vængi.
�?ær tillögur sem við höfum unnið að undanfarið, ásamt þeim Viðari Magnússyni formanni Fagráðs sjúkraflutninga Íslands og Njáli Pálssyni formanni fagdeildar utanspítalaþjónustu hjá Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, snúa að því að fá sérstaka sjúkraþyrlu í notkun. Hugmyndir þessar taka mið af því sem gengur og gerist á hinum Norðurlöndunum. Áhöfn þyrlunnar yrðu skipuð með sérhæfðum bráðatækni og bráðalækni sem yrðu á svokallaðri staðarvakt allan sólarhringinn. �?annig verður hægt að stytta viðbragðstíma í að veita sérhæfða utanspítalaþjónustu fyrir þá sem veikjast og slasast fjarri spítölum. Eins og allir þekkja þá getur hver mínúta skipt máli.
Vilhjálmur Árnason þingmaður
-höfundur skipar 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi

Nýjustu fréttir

Ófært til lands – uppfært
Gyllta flóran keppir fyrir hönd Féló
Bíða enn eftir alvöru vertíðarstemmningu
Ferðaþjónustan er öflug atvinnugrein sem þarf tryggar samgöngur
Gul viðvörun á Suðurlandi: Búist við þrumuveðri
Evrópudagur talþjálfunar er í dag
Forsala á Þjóðhátíð 2026 hafin
Hitastig sjávar að vetri aldrei verið hærra
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.