Vilja draga úr áhrifum hækkunar fasteignamats
hus_midbaer_bo
Vestmannaeyjabær. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Bæjarráð Vestmannaeyja ræddi – á fundi ráðsins í vikunni – ramma og forsendur fjárhagsáætlunar. Fram kemur í fundargerð að undanfarnar vikur hafi vinna staðið yfir á bæjarskrifstofum Vestmannaeyja við að skoða áhrif breytingar á álagningarprósentu fasteignaskatts á tekjur bæjarsjóðs. Bæjarstjóri fór yfir vinnuna sem unnin var fyrir bæjarráð og þá tillögu sem liggur fyrir.

Í afgreiðslu ráðsins segir að bæjarráð leggi til við bæjarstjórn að álagningarprósenta fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði lækki á milli ára úr 0,250% og verði 0,235% (A flokki), hlutfallið verði óbreytt á opinberar stofnanir (B flokki), þ.e. 1,320% og að hlutfallið lækki úr 1,350% í 1,325% á annað húsnæði (C flokki), þ.m.t. atvinnuhúsnæði. Með þessu verður dregið úr áhrifum hækkunar fasteignamats á íbúa og fyrirtæki í Vestmannaeyjum.

Bæjarráð leggur til þá breytingu á innheimtu fasteignagjalda að endurálagning verði gerð í júní ár hvert á alla flokka (A-B-C). Afsláttur af fasteignagjöldum einstaklinga verður endurreiknaður miðað við skattframtal ársins á undan. Er þetta breytt verklag við að endurskoða álagningu þar sem álagningin er endurreiknuð hjá öllum, ekki eingöngu hjá þeim sem þess óska.

Nýjustu fréttir

Tap hjá ÍBV gegn Stjörnunni
Hoppukastalar, pylsur og Arsenal-stemning í Höllinni
Hjónin Rósa og Ágúst deila áhuga á handverki
Eyjakonur sækja Stjörnuna heim í mikilvægum leik
45 nemendur útskrifuðust frá FÍV
Eldri hjón deila 336 milljónum með börnum og barnabörnum
Hipsumhaps á Þjóðhátíð
Stuttir túrar skiluðu góðum afla
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.