Vilja fjölga óstaðbundnum störfum á landsbyggðinni
default
Vestmannaeyjar. Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson

Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra hefur ákveðið að veita styrki, að fjárhæð allt að 150 milljónum kr. af byggðaáætlun, til að fjölga óstaðbundnum störfum á landsbyggðinni. Ríkisstofnanir á höfuðborgarsvæðinu eiga kost á að sækja um styrki til að ráða í óstaðbundin störf á þeirra vegum utan höfuðborgarsvæðisins, m.a. til að mæta kostnaði við aðstöðu fyrir starfsfólk. Málið var kynnt á ríkisstjórnarfundi í gær og voru ráðherrar hvattir til að nýta tækifærið til að fjölga opinberum störfum á landsbyggðinni.

Verkefnið er í takt við stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum og stefnumótandi byggðaáætlun sem Alþingi samþykkti fyrir tímabilið 2022-2036. Markmiðið er að fjölga atvinnutækifærum á landsbyggðinni með fjölbreyttum störfum og styrkja þannig búsetu í byggðum landsins. Fjallað er nánar um verkefnið óstaðbundin störf í aðgerðaáætlun byggðaáætlunar, að því er segir í tilkynningu frá innviðaráðuneytinu.

Nánar um styrkina

Styrkir vegna óstaðbundinna starfa verða auglýstir í haust. Ríkisstofnanir sem staðsettar eru á höfuðborgarsvæðinu geta sótt um styrk vegna starfa sem ráðið verður í utan þess svæðis og er þeim ætlað að koma til móts við ferðakostnað og leigu á aðstöðu í vinnustaðaklösum.

Veita má styrk til stofnunar vegna starfs til allt að þriggja ára. Hámarksstuðningur við hvert starf getur numið allt að 2 milljónum króna á ári. Byggðastofnun mun annast umsjón með úthlutun styrkja og gerð samninga og verður árangur af verkefninu metinn fyrir lok árs 2025.

Nýjustu fréttir

Arnar kom íslenska landsliðinu á EM 2026
ÍBV og FH skildu jöfn á Hásteinsvelli
Vinnslustöðin snýr vörn í sókn á krefjandi ári
Bilun í Herjólfi veldur lengri siglingatíma
Spurt og svarað: Guðni Hjöll frá Miðflokknum
ÍBV hefur leik í Bestu deildinni – tekur á móti FH á Hásteinsvelli
Flugvél frá Icelandair flaug óvenju lágt yfir Eyjum
Lækkandi ölduhæð og Álfsnesið á leiðinni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.