Vill lögregla hvetja alla þessa aðila til að fara varlega á þessum tækjum og reyna ekki hluti sem þeir ráða ekki við. �?á eru aðrir ökumenn hvattir til að gæta að sér þegar þessi tæki eru á ferðinni. Einn ökumaður var kærður fyrir að stöðva ekki við gangbraut og hleypa gangandi vegfaranda yfir götuna. Er rétt að árétta að ökumaönnum ber að veita gangandi vegfarendum forgang þar sem þeir hyggjast ganga yfir götur á gangbraut. Tilkynnt var um tvö umferðaróhöpp á tímabilinu.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.