Vonbrigði hvernig íbúum þessa lands er mismunað
vatn_dropar_krani_erl
Það er margfalt dýrara að fá sér vatn úr krananum í Eyjum en á Suðurnesjum - hjá sama fyrirtæki.

Mikið hefur verið fjallað um hækkun á húshitunarkostnaði í Vestmannaeyjum undanfarna mánuði enda hækkuðu HS Veitur hann um 33% á fjórum mánuðum.

Fyrst var hækkun á gjaldskrá og lækkun á hitastigi vatns í september sl. sem samsvaraði 15% hækkun á húshitunarkostnaði og svo í annað sinn um áramótin þar sem 18% gjaldskrárhækkun kom til. Orkustofnun og Orkumálaráðuneyti hafa staðfest umræddar hækkanir. Þetta kemur fram í fundargerð bæjarstjórnar Vestmannaeyja sem tók málið fyrir á fundi sínum á fimmtudaginn var.

Samkvæmt samantekt Byggðastofnunar fyrir árið 2023 er Vestmannaeyjabær stærsta sveitarfélagið sem býr við svo háan húshitunarkostnað, sem hefur hækkað enn frekar frá því að samantektin var gerð. Þá er Vestmannaeyjabær með hæsta húshitunarkostnað á landinu þar sem notast er við rafkyntar fjarvarmaveitur.

Óska eftir rökstuðningi og öllum upplýsingum frá Orkustofnun og orkumálaráðuneyti

Í afgreiðslutillögu sem samþykkt var með níu samhljóða atkvæðum bæjarfulltrúa segir:

Bæjarstjórn óskar ef því við Orkustofnun og orkumálaráðuneytið að Vestmannaeyjabær fái rökstuðning og allar þær upplýsingar sem lágu til grundvallar við samþykkt gjaldskráhækkana HS Veitna á heitu vatni sl. mánuði upp á samtals 33%.

Bæjarstjórn skorar á HS Veitur að halda íbúafund og útskýra fyrir bæjarbúum þær hækkanir á gjaldskrá sem fyrirtækið hefur gripið til í Vestmannaeyjum undanfarna mánuði. Ekki hafa allar rafkyntar fjarvarmaveitur á landinu hækkað gjaldskrá sína vegna skerðinga á raforku eins og HS Veitur hafa gert.

Það er með öllu óskiljanlegt og mikil vonbrigði hvernig íbúum þessa lands er mismunað með þeim hætti sem kemur fram í gjaldskrám fyrir húshitun á landsbyggðinni. Núverandi staða er óásættanleg fyrir íbúa Vestmannaeyja og gerir bæjarstjórn kröfu til þingmanna kjördæmisins að þeir knýi fram breytingar á þeirri löggjöf sem gildir um rafkyntar fjarvarmaveitur, segir í afgreiðslu bæjarstjórnar.

 

https://eyjar.net/hs-veitur-hafa-haekkad-eigid-fe-handvirkt-um-64-milljarda/

https://eyjar.net/kalda-vatnid-468-dyrara-i-eyjum/

https://eyjar.net/i-fimmta-saeti-fyrir-haekkun/

Nýjustu fréttir

85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.