Skólastarf hefst á ný í GRV
Skólasetning GRV fer fram á mánudaginn n.k.

Nú styttist í að skólastarf hefjist á ný í Grunnskóla Vestmannaeyja eftir sumarfrí. Undirbúningur fyrir nýtt skólaár er á lokametrunum og á mánudaginn mæta nemendur á ný til leiks.

Skólasetning 2.–10. bekkjar

Skólasetning fyrir nemendur í 2.–10. bekk fer fram í Íþróttahúsinu mánudaginn 24. ágúst klukkan 10:30. Foreldrar nemenda í 2.–6. bekk mæta svo með börnum sínum í stofur að skólasetningu lokinni.

Skóli samkvæmt stundatöflu hjá nemendum í 2.–10. bekk þriðjudaginn 25. ágúst.

1. bekkur

Mánudaginn 24. ágúst fara fram einstaklingsfundir hjá nemendum í 1. bekk. Umsjónarkennarar senda foreldrum tölvupóst með upplýsingum um tímasetningu fundanna.

Þriðjudaginn 25. ágúst klukkan 8:30 fer síðan fram skólasetning og stuttur foreldrafundur fyrir 1. bekk í sal Hamarskóla.

Nýjustu fréttir

Stjórnendur Herjólfs gestir á laugardagsfundi í Ásgarði
Safnahelgin formlega sett – myndir
Magnús Dagur tryggði ÍBV sigur á Víkingi á lokasekúndunum
Steinunn Sigurðardóttir les úr Veislu þrjú á Safnahelgi
Lengri hafnargarðar myndu auka dýpkunarþörf
Rauðátan gæti orðið ný gullnáma sjávarútvegsins
Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.