VSV Finland Oy – Nýtt dótturfélag í Helsinki

Vinnslustöðin hefur stofnað dótturfélagið VSV Finland Oy og ráðið til þess finnskt starfsfólk sem aflað hefur sér reynslu og þekkingar á innflutningi á eldislaxi og markaðssetningu, sölu og dreifingu laxins í Finnlandi og í Eystrasaltsríkjunum.

VSV Finland Oy er með bækistöð í Helsinki (sbr. meðfylgjandi mynd) og hefur þegar tekið starfa. Framkvæmdastjóri er Mika Jaaskelainen, áður framkvæmdastjóri Kalatukku E. Eriksson, sölufyrirtækis sjávarafurða í Finnlandi.

Meginverkefni VSV Finland verður að flytja inn fisk og sjávarfang frá Íslandi og öðrum norrænum ríkjum til sölu og dreifingar í Finnlandi og á öðrum mörkuðum í Evrópu.

 

– Að gefnu tilefni, Sigurgeir B. Kristgeirsson framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar: Tvennt hlýtur að vekja athygli í þessari frétt um finnska dótturfélagið, annars vegar það að starfsmenn ykkar í Helsinki eru sjóaðir í sölu á eldislaxi og hins vegar að þarna er líka talað um dreifingu/flutninga á afurðum.

Er Vinnslustöðin að fara að inn á nýjar brautir í starfsemi sinni með dótturfélaginu í Finnlandi?

„Að nokkru leyti, já. Undirverktakar sjá vissulega um flutningastarfsemina en hvað eldislaxinn varðar þá hefur Vinnslustöðin hvorki komið nálægt laxi né laxaafurðum fyrr en nú. Þarna kom einfaldlega spennandi tækifæri upp í hendurnar á okkur og meðbyrinn er framar vonum strax í upphafi.

Þetta snýst auðvitað um viðskipti með lax en ekki að Vinnslustöðin sjálf sé á leið í laxeldi. Starfsmenn VSV Finland Oy koma til okkar með viðskiptasambönd sem felast í því að kaupa eldislax í Noregi og selja í Finnlandi og Eystrasaltsríkjunum. Þarna eru vissulega nýir snertifletir sem okkur þykir mjög áhugavert að vinna með og augljóslegar eru miklir möguleikar í laxeldinu, atvinnugrein sem er alls staðar í mikilli sókn og örum vexti.

Sérlega ánægjulegt og áhugavert er svo það að við finnum fyrir miklum áhuga í Finnlandi fyrir samstarfi við að kaupa og selja fisk. Það þykir mikill fengur að því að fá öflugt íslenskt sjávarútvegsfyrirtæki inn á finnskan markað með þessum hætti.

Dótturfélagið okkar hefur einungis verið starfrækt í fáeina daga en samt hafa margir haft samband. Greinilegt er að það hefur farið víða að við værum að stofna til þessa félags með þekktu og reynsluríku fólki í viðskiptum með fisk og fiskafurðir. Óvenjulegt er að hefja starfsemi á nýju markaðssvæði og fá svona sterk viðbrögð þegar í stað.“

 

Nýjustu fréttir

The Puffin Run hlaupið í níunda sinn á morgun
Sterkara íþróttasamfélag fyrir alla
Frábær endurkomusigur ÍBV gegn Víkingi
Eru hagsmunir Vestmannaeyja einskis virði?
Krefjandi aðstæður við borun
Jóný bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2026
Guðný Geirsdóttir hjá ÍBV út 2027
Góð stemmning á herrakvöldi fótboltans
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.