Yndislegt að vera kominn í úrslit

„Ein­vígið leggst ótrú­lega vel í mig. Það er al­veg ynd­is­legt að vera kom­inn aft­ur í úr­slit og líka fyr­ir okk­ur að sýna að við erum stöðugt í bar­áttu um titla.

Við erum alltaf þarna uppi og búum okk­ur und­ir það fyr­ir hvert tíma­bil að vera klár­ir á þess­um tíma árs að spila hand­bolta,“ segir Kári Kristján Kristjáns­son, leikmaður ÍBV í hand­knatt­leik, í sam­tali við Morg­un­blaðið.

ÍBV mæt­ir Hauk­um í úr­slita­ein­víg­inu um Íslands­meist­ara­titil­inn og fer fyrsti leik­ur­inn fram í Vest­manna­eyj­um í dag og hefst klukk­an 15.30.

Í undanúr­slit­un­um vann ÍBV ein­vígi sitt við FH, 3:0, en Hauk­ar unnu ein­vígi sitt við Aft­ur­eld­ingu, 3:2.

„Hauk­ar eru nátt­úr­lega að koma úr stórri seríu á móti Aft­ur­eld­ingu og að sjálf­sögðu erum við bún­ir að vera að fylgj­ast með þeim í gegn­um þetta. Það hafa all­ir horft á þetta og við erum bún­ir að rýna í þeirra leik.

En fyrst og fremst mun öll vinn­an hjá okk­ur fara inn á við. Við þurf­um að laga eitt­hvað hjá okk­ur, erum alltaf að vinna í því og erum mun minna að spá í Hauka,“ sagði Kári Kristján.

Af mbl.is

Leikið er í Íþróttamiðstöðinni og hefst leikurinn kl. 13.00.

 

Kári hefur sjaldan verið betri en í vetur.

Mynd Sigfús Gunnar.

Nýjustu fréttir

Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Laxey rís í Vestmannaeyjum
Arnór bestur í tapi Karlskrona
Rangur loki tafði prófanir á sundlaugarkerfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.