Skallagrímur hefur ráðið til sín þjálfara fyrir komandi átök í 4. deildinni í sumar.
Fótbolti.net greindi frá.
�?að er enginn annar en reynsluboltinn Yngvi Borgþórsson sem tekur við liðinu og verður spilandi þjálfari.
Yngvi var spilandi þjálfari Einherja í 3. deild í fyrra en þar endaði liðið í 3. sæti.
Yngvi hefur leikið yfir 250 leiki á ferli sínum, en flestir þeirra voru með ÍBV.
�?á hafa þrír leikmenn gengið til liðs við Skallagrím á undanförnum dögum. Mateusz Sajdowski er nýlega kominn frá pólsku félagsliði.
�?á eru þeir Viktor Már Jónasson og Reynir Warner Lord einnig komnir til Skallagríms en þeir koma frá Dalvík