Til hamingju með daginn allt verkafólk Íslands, þið eruð undirstöður íslensks atvinnulífs og án ykkar værum við ekki hér í dag.
Sú barátta sem þið hafið lagt í síðustu áratugi er ekki sjálfgefin. Til þurfti elju, baráttu,staðfestu og samstöðu. Þau réttindi sem þið hafið áunnið ykkur eru ekki sjálfgefin og geta auðveldlega glatast ef ekki er að þeim hugað.
Veikindaréttur, lögbundið orlof, átta tíma vinnudagur eða vinnutímastytting komu ekki að sjálfu sér og voru ekki réttindi sem auðveldlega voru látin af hendi af atvinnurekendum. Fyrir þeim þurfti að berjast með hörðum aðgerðum og gríðarlegri samstöðu sem hefur alltaf verið megin einkenni verkafólks. Það kann að standa saman í baráttu fyrir sínum réttindum.
Með sífelldri fækkun starfa, tilkomu gervigreindarinnar og breyttu starfsumhverfi verðið þið að standa vörð um ykkar réttindi og að þau séu ekki fótum troðin. Þau mega ekki verða tæki í höndum atvinnurekenda til að skerða kjör ykkar eða fækka störfum.
Baráttan í dag snýst um afkomu ykkar, að það þurfi ekki að vinna myrkranna á milli til að eiga fyrir fæði og klæði og hvað þá húsnæði. Þá skal vinnutímastyttingin verða sú kjarabót sem henni var ætlað að vera, til að auka gæðastundir með fjölskyldunni í formi aukins frítíma ykkur til handa.
Framtíðin er ykkar, standið vörð um ykkar stéttarfélög og látið ekki tala niður mikilvægi samningaréttar ykkar. Sýnið samstöðu, þið eruð grunnstoðir íslensks atvinnulífs, án ykkar munu hjól atvinnulífsins stöðvast, mun víðar en fólk veit. Innviðir Íslands eru styrkir með ykkar framlagi, aldrei gleyma því.
Eigið gleðilegan baráttudag kæra verkafólk, sameinuð stöndum vér, sundruð föllum vér.
Kveðja frá frambjóðendum Eyjalistans