�?g held að Wikipedia og reyndar ýmis önnur wikikerfi sé besta verkfærið fyrir svoleiðis ritverk í dag og ég er reyndar byrjuð að skrifa greinar um fjóra íslenska skopmyndateiknara á Wikipedia. Hérna eru þessar greinar:
Svo bjó ég til flokkinn Íslenskir skopmyndateiknarar
Vonandi taka aðrir undir þetta framtak og bæta við greinarnar eða búa til nýjar greinar um skopmyndateiknara sem vantar. Hér eru leiðbeiningar frá mér um hvernig á að setja inn greinar um persónur á Wikipedia.
�?g vona að þess verði gætt að skopmyndirnar eftir Sigmund verði með einhverju höfundarleyfi CC þannig að það megi nota þær t.d. í Wikipedíu.
Hér er greinin hjá Guðmundi Magnússyni:
Við þurfum bók um sögu skopteikninga
�?ess má geta að það sem sett er inn í Wikipedia er eitthvað sem allir mega nota og ekki þarf að spyrja neinn um leyfi. �?g skrifaði greinina um Sigmund eftir að hafa flett upp í gagnasafni Morgunblaðsins og fleiri ritum en svo sé ég að Vestmannaeyjavefurinn heimaslóð.is hefur tekið efni úr greininni minni á Wikipedíu inn á sinn vef. �?etta er skemmtilegt dæmi um notkunargildi Wikipedia, mér finnst gaman að það sem ég hef sett inn á Wikipedia um Vestmanneyinginn Sigmund sé tekið upp á upplýsingavef um Vestmannaeyjar.
http://salvor.blog.is/blog/salvor/




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.