Skipin fyllt á einum og hálfum til tveimur sólarhringum
20221101 121630
Bergur VE og Vestmannaey VE við bryggju í Eyjum.

Ísfisktogararnir Bergur VE og Vestmannaey VE lönduðu báðir fullfermi í Eyjum á miðvikudag og aftur á sunnudag. Í fyrri túr skipanna var mest af ýsu og þorski ásamt kola en í seinni túrnum var mest af ýsu, þorski og ufsa. Skipstjórar skipanna eru afar sáttir við gang veiðanna. Jón Valgeirsson á Bergi segir að veiðin sé einfaldlega ljómandi góð. „Það er bókstaflega ekkert mál að fá ýsu og þorsk en það þarf að hafa meira fyrir öðrum tegundum. Í fyrri túrnum vorum við á Víkinni og Ingólfshöfða og þar fékkst dálítið af kola. Í seinni túrnum vorum við hinsvegar í Háadýpi og á Pétursey og þá fékkst töluvert af ufsa sem var fagnaðarefni. Það getur enginn kvartað undan aflabrögðunum og það tekur einn og hálfan til tvo sólarhringa að fylla skip eins og okkar. Við fórum út eftir löndun á sunnudag og nú erum við á Víkinni í glimrandi fiskiríi. Hér fæst ýsa og þorskur og það er hinn fallegasti fiskur,“ sagði Jón þegar heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við hann.

Síðdegis á mánudag sló tíðindamaður heimasíðunnar á þráðinn til Birgis Þór Sverrissonar skipstjóra á Vestmannaey. „Við höfum gert fína túra að undanförnu og vorum þá helst að veiða á Pétursey og í Háadýpinu. Það eina sem hefur reynst erfitt er að blanda aflann eins og við viljum. Núna fórum við út á sunnudagskvöld og lentum í fínu fiskiríi en nú er komið vitlaust veður þannig að við verðum að færa okkur vestureftir. Okkur líkar bölvanlega þegar brælir svona, það teygir á túrnum og þyngir skapið,“ segir Birgir Þór.

Nýjustu fréttir

Sýningin Geological Rhapsody opnar á morgun
Nýtt fyrirkomulag í Uppbyggingarsjóði Suðurlands
Íþróttahátíð ÍBV í kvöld
Bærinn niðurgreiðir heimsendan mat um 53%
Sigurður Guðmundsson á Hljómey í ár
Jákvæðar umræður um Eyjagöng á Hvolsvelli
Eyjakona og drottning íslenskrar knattspyrnu
Bæjarstjórnarfundur í beinni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.