Ian Jeffs leikmaður 15. umferðar að mati Fótbolta.net
13. ágúst, 2007
Created by PhotoWatermark Professional
Created by PhotoWatermark Professional

Ian Jeffs átti stórleik á miðjunni hjá ÍBV þegar að liðið sigraði Stjörnuna 4-2 í fyrstu deildinni á föstudaginn. Jeffs skoraði meðal annars tvívegis í leiknum og fyrir góða frammistöðu hefur hann hlotið nafnbótina leikmaður 15.umferðar á Fótbolta.net.

Ian Jeffs:
Ian Jeffs er 25 ára gamall Englendingur sem gekk í raðir ÍBV frá Crewe Alexandra á Englandi fyrir tímabilið 2003. Hann lék hér á landi við góðan orðstýr 2003, 2004 og 2005 en hélt eftir það til Svíþjóðar þar sem hann gekk í raðir Örebro. Á fyrsta ári hjá Örebro tryggði liðið sér sæti í efstu deild í Svíþjóð og Jeffs var lykilmaður í liðinu. Hann náði ekki að vinna sér sæti í liðinu fyrir þessa leiktíð og fór því á láni til ÍBV út leiktíðina. Hann hefur spilað 48 leiki í Landsbankadeild með ÍBV og skorað í þeim 8 mörk auk 6 leikja í VISA-bikarnum.
„Mér fannst ég byrja leikinn mjög rólega og ég var ekki inni í leiknum fyrstu 20-25 mínúturnar en ég var ánægður með frammistöðuna eftir það,“ sagði Jeffs við Fótbolta.net í dag.

 Jeffs skoraði tvívegis fyrir Eyjamenn og kom liðinu meðal annars í 3-2 með marki úr vítaspyrnu.

„Fyrra markið kom úr aukaspyrnu, ég sá glufu í veggnum og ákvað að reyna og hitti boltann fullkomlega þannig að hann fór inn. Síðara markið kom úr vítaspyrnu sem var nokkuð mikilvægt, staðan var 2-2 og það var mikilvægt að skora.“

Eyjamenn eru í fimmta sæti deildarinnar, fjórum stigum á eftir Fjölni sem eru í þriðja sætinu en þrjú efstu liðin fara upp í Landsbankadeildina.

 „Þetta var mjög mikilvægur leikur, við urðum að vinna og ekkert annað ef við ætluðum að halda í vonina að fara upp,“ sagði Jeffs um leikinn á móti Stjörnunni en hann telur möguleika Eyjamanna á að fara upp vera fína. „

Ég held að við eigum góðan möguleika, öll toppliðin eiga eftir að spila gegn hvor öðru. Við verðum bara að gera betur gegn toppliðunum og halda áfram að vinna. Í næstu fjórum leikjum verðum við að reyna að ná eins mörgum stigum og við getum og síðan mættum við þremur efstu liðunum í þremur síðustu umferðunum og við munum sjá hvernig það fer.

Jeffs kom til ÍBV á láni frá Örebro í Svíþjóð í júlí og er hann nokkuð sáttur við spilamennsku sína hingað til í sumar.

„Ég er nokkuð ánægður, eftir að ég kom aftur finnst mér við hafa spilað nokkuð vel. Mér fannst við byrja síðari hluta tímabilsins mun betur en þann fyrri. Ég er nokkuð ánægður með spilamennsku mína og liðið virðist líka vera að spila vel sem stendur.“

Þessi knái Englendingur verður hjá ÍBV út tímabilið en hann veit ekki hvernig framhaldið verður eftir það. „Ég hef ekki hugmynd. Ég er samningsbundinn Örebro í eitt ár og við munum sjá hvað gerist á næstu mánuðum,“ sagði Ian Jeffs leikmaður 15.umferðar í 1.deildinni að lokum við Fótbolta.net.

Hér er hægt að sjá fleirri sem hafa verið valdir maður umferðarinnar t.d. er hægt að lesa um Atla Heimisson ÍBV hér, en hann var valinn maður 13 umferðar af fótbolti.net

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Fors 10 Tbl 2025
10. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
PXL 20251104 095848596
7. nóvember 2025
20:00
Bókakynning í Eldheimum - Óli Gränz
Skemmtun
ludra
8. nóvember 2025
16:00
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í Hvítasunnukirkjunni
Skemmtun
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.