Trikot með tvö lög á myspace.com

Tríkot er hljómsveit frá Vestmannaeyjum og hefur verið starfandi í nokkur ár. Þeir hafa verið að  spilað á allskyns gleðum, blótum, tíðum og pöbbum út um allar trissur. Mest hefur þó verið að gera á heimavelli. Hljómsveitin er með mjög fjölbreytt lagaval, allt frá gömlu dönsunum að þungarokki.

Trikot er með tvo lög á myspace síðu hljómsveitarinnar, annað er gamalt Buttercup lag sem Trikot hefur sett í sinn búning.

Nýjasta lag þeirra Tríkot manna er lagið Letin sem er eftir söngvara sveitarinnar Sæþór Vídó. Textinn fjallar um þennan kvilla sem hrjáir okkur öll einhvern tímann á lífskeiðinu og oftar en einu sinni og þegar hann leggst yfir mann er oft þrautinni þyngra að losna við hann.

Heimasíða Tríkot á myspace er www.myspace.com/trikot

 

Nýjustu fréttir

Endurskoða þarf hlutverk ríkisfjölmiðilsins frá grunni
ÍBV B mætir Herði í Powerade bikarnum
Treyjudagurinn haldinn í fyrsta sinn
Skammt í farþegametið í komu skemmtiferðaskipa
Samfylkingin stærst en Sjálfstæðisflokkurinn sækir í sig veðrið
Stór ágústmánuður að baki hjá Herjólfi
Sænski sendiherrann genginn til liðs við Taflfélag Vestmannaeyja
Fyrsta Aglow-samvera haustsins í kvöld
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.