Strákarnir til Eistlands á morgun - léku tvo æfingaleiki um helgina

Meistaraflokkur karla í handboltanum er kominn á fullt í undirbúningi sínum fyrir komandi tímabil. Þeir héldu uppá fastalandið og léku tvo æfingaleiki um helgina, gegn Selfossi og Víkingi. Leikurinn gegn Selfossi var leikinn í gær, laugardag, og sigruðu strákarnir 34-32. Í dag var síðan leikið gegn Víkingi í Reykjavík og vannst sá leikur einnig, 34-29. Leikmenn og forráðamenn liðsins voru mjög ánægðir með leikina enda stilltu andstæðingarnir upp sínum sterkustu liðum en Eyjapeyjar stilltu upp hálfgerðum kjúklingum eins og fyrirliðinn Sigurður Bragason hafði á orði í samtali við ibv.is. Siggi var markahæstur í þessum tveimur leikjum og Sindri Haraldsson og Brynjar Karl Óskarsson komu sterkir inn í varnarleiknum. Friðrik Sigmarsson, sonur eins besta markmanns á Íslandi fyrr og síðar, varði svo mjög vel í leiknum gegn Víkingi en fyrirliðinn sagði einnig að allir ungu strákarnir hefðu staðið sig með prýði.

Á morgun leggja svo strákarnir land undir fót er þeir halda alla leið til Eistlands í æfingaferð. Þeir fljúga út kl 6:40 í fyrramálið áleiðis til Stokkhólms þar sem þeir taka svo aðra vél sem flytur þá til höfuðborgar Eistlands, Tallinn. Í Tallinn munu þeir fá góðar móttökur en meistaralið Eista í handbolta, Pölva, mun taka á móti þeim við komuna. Strákarnir munu síðan halda í samnefndan bæ liðsins sem er 200 km fyrir utan Tallinn og dvelja þar í fjóra daga við æfingar auk þess að leika einn leik við meistarana. Eftir þessa fjóra daga verður síðan haldið til Tallinn á geysisterkt mót þar sem sex lið munu etja kappi. Liðin koma frá Hvíta-Rússlandi, Finnlandi, Svíþjóð, Eistlandi og Lettlandi og þrjú þessarra liða eru meistaralið í sínum löndum en það finnska, eistneska og hvít-rússneska eru þau sterkustu í sínum heimalöndum. Því er ljóst að um geysisterkt mót er að ræða og gaman fyrir strákana að prófa sig á móti þessum liðum.

Fyrirliðinn sagði ennfremur í samtali við ibv.is að strákunum hlakkaði mjög til fararinnar og góður mórall væri í hópnum. ,,Þetta er fríður hópur sem fer utan en samtals eru það 14 leikmenn og þrír fararstjórar sem fara. Þetta er kærkomin viðbót við undirbúningstímabilið og á bara eftir að þjappa hópnum enn betur saman. Við ætluðum reyndar upphaflega að fara til Litháens í æfingaferð enda Gintaras þjálfari þaðan, en hann náði ekki að finna neitt mót þar í landi. Vinur hans er að þjálfa meistaralið Eista, Pölva, og þeir buðu okkur bara á þetta sterka mót sem er bara alveg frábært.”

Siggi sagði að góð sigurverðlaun væru í mótinu. ,,Já, það eru 2000 evrur (185.000) í sigurlaun í mótinu og við stefnum að sjálfsögðu á það. Annað sætið gefur svo 1500 evrur og þriðja sætið 1000 evrur. Við munum allir leggja enn meira á okkur útaf peningaverðlaununum og ekki skemmir fyrir að ákveðið hefur verið að þetta renni allt í leikmanna(bjór)sjóð að tímabili loknu,” sagði hann að lokum og hló.

Eins og fyrr segir leggur hópurinn af stað snemma í fyrramálið og flýgur svo til baka þriðjudaginn 28. ágúst. ÍBV.is óskar hópnum góðrar ferðar og góðrar skemmtunar í þessari spennandi æfingaferð til Eistlands.

Nýjustu fréttir

Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Athugasemd
Dísa leiðir Eyjalistann
Kvenfélagið Líkn færði HSU veglega gjöf
Loðnan tengir saman Vestmannaeyjar og Japan
Listir og menning í Framhaldsskóla Vestmannaeyja
Lestur ársreiknings bæjarins gefur allt aðra mynd
Ísólfur Gylfi – 42 ár frá Helliseyjarslysinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.