Tilboð Stillu í Vinnslustöðina útrunnið

Tilboð Stillu í allt hlutafé Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum, rann út klukkan 16 í dag. Ekki liggur fyrir hve margir hluthafar hafa samþykkt tilboðið. Barátta um eignarráð yfir Vinnslustöðinni hefur staðið yfir síðan í vor en um miðjan apríl gerðu heimamenn, sem samtals eiga ríflega helmingshlut í Vinnslustöðinni, yfirtökutilboð í félagið á genginu 4,6. Í lok […]

Tilboð Stillu í Vinnslustöðina útrunnið

Tilboð Stillu í allt hlutafé Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum, rann út klukkan 16 í dag. Ekki liggur fyrir hve margir hluthafar hafa samþykkt tilboðið. Barátta um eignarráð yfir Vinnslustöðinni hefur staðið yfir síðan í vor en um miðjan apríl gerðu heimamenn, sem samtals eiga ríflega helmingshlut í Vinnslustöðinni, yfirtökutilboð í félagið á genginu 4,6. Í lok […]

Kveikt í bílhræjum og málningu úðað á bifreiðar

Um kl. 22 á föstudag sáu lögreglumenn á eftirlitsferð svartan reyk stíga upp af gámsvæði við Hrísmýri á Selfossi. Þegar betur var að gáð hafði verið kveikt í bílhræjum Lögreglumenn náðu skömmu síðar þremur unglingum á aldrinum 14 til 17 ára sem grunaðir voru um íkveikjuna. Þeir voru handteknir og færðir á lögreglustöð þar sem […]

Fjölmargir verðlaunahafar í HSK liðinu

Tíunda Unglingalandsmót UMFÍ fór fram á Höfn í Hornafirði um verslunarmannahelgina. Fimmtíu og fimm keppendur tóku þátt í mótinu af sambandssvæði HSK og kepptu í frjálsíþróttum, golfi, glímu, hestaíþróttum, skák, sundi, knattspyrnu og körfuknattleik. Keppendur HSK náðu í verðlaunasæti í öllum greinum nema hestaíþróttum. H fór fram á Höfn í Hornafirði um verslunarmannahelgina. (meira…)

Ég er ábyrgur fyrir liðinu

Created by PhotoWatermark Professional

Í ljósi árangri liðsins, síðasta tapleiks og umræðna eftir hann tel ég mig knúinn til að senda frá mér nokkrar línur. Blaðamaður Frétta tók viðtal við mig strax eftir síðasta leik þar sem ég gagnrýndi leikmenn og sagði þá skorta karakter.Ég vil hafa það alveg skýrt að ég er ekki að varpa ábyrgð frá mér yfir […]

Aukin samvinna lögregluembættanna á Suðurlandi

Skrifað var í morgun í Vestmannaeyjum undir samstarfssamning milli lögregluembættanna á Suðurlandi. Samningurinn fjallar um aukna samvinnu milli embættanna í Vestmannaeyjum, á Selfossi og Hvolsvelli og er markmiðið m.a. að samhæfa almenna löggæslu á svæðinu, auka hreyfanleika liðanna, samræma vaktskipulag eins og kostur er og efla rannsóknir mála. Í samningunum er gert ráð fyrir samvinnu […]

Eygló náði ekki kjöri sem formaður

Eygló Harðardóttir náði ekki kjöri sem formaður Landsambands framsóknarkvenna sem hélt þing um helgina. Lét hún í lægra haldi fyrir Ólöfu Pálínu Úlfarsdóttur. Eftir mikla hvatningu á þinginu tók Eygló ákvörðun um að setjast í framkvæmdastjórn LFK. Um þetta segir Eygló á bloggsíðu sinni: (meira…)

Strákarnir til Eistlands á morgun – léku tvo æfingaleiki um helgina

Meistaraflokkur karla í handboltanum er kominn á fullt í undirbúningi sínum fyrir komandi tímabil. Þeir héldu uppá fastalandið og léku tvo æfingaleiki um helgina, gegn Selfossi og Víkingi. Leikurinn gegn Selfossi var leikinn í gær, laugardag, og sigruðu strákarnir 34-32. Í dag var síðan leikið gegn Víkingi í Reykjavík og vannst sá leikur einnig, 34-29. […]

Enn unnar skemmdir á Skanssvæðinu

Enn á ný hafa skemmdarvargar unnið tjón á Skanssvæðinu í Vestmannaeyjum en svæðið verður reglulega fyrir barðinu á þeim. Skemmdir hafa verið unnar á salernisaðstöðunni á svæðinu, gluggar brotnir, kveikt hefur verið í sorptunnu auk annarra smáskemmda. (meira…)

Eygló Harðardóttir tapaði í formannskosningu

Eyjakonan Eygló Harðardóttir tapaði í formannskosningum fyrir Ólöfu Pálínu Úlfarsdóttur um embætti formanns Landsamband Framsóknarkvenna á laugardaginn. Ólöf hlaut 60 % atkvæða á móti 40 % atkvæða Eyglóar. Eygló var kjörin ný í framkvæmdastjórn sambandsins. (meira…)

Umdeilt að færa forræði Vestmannaeyinga í orkumálum til Hitaveitu Suðurnesja

Eyjar.net heldur áfram að heyra í valinkunnum Eyjamönnum varðandi hvaða möguleika þeir sjá í stöðunni með söluhagnaðinn af Hitaveitu Suðurnesja. Að þessu sinni heyrðum við í Ragnari Óskarssyni fyrrverandi bæjarfulltrúa og fengum að heyra hvað hann leggur til.   Spurningin er sú sama og áður:Ef þú værir bæjarstjórnin hvað myndirðu leggja til að gert yrði við þessa […]

Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands, á Egilsstöðum 17. – 19. ágúst 2007.

Aðalfundur Skógræktrarfélags Íslands haldinn á Egilsstöðum dagana 17. – 19.águst 2007 fagnar samþykkt Alþingis á vorþingi 2007 á þingsályktunartillögu um stofnun Trjáræktarseturs sjávarbyggða í Vestmannaeyjum. Fundurinn skorar á fjárlaganefnd Alþingis að veita á fjárlögum 2008 nægilegu fé til að koma setrinu strax á fót og af myndarskap. Ályktunin var samþykkt einróma. (meira…)

Gunnar er í óvissu með framhaldið

Gunnar Heiðar Þorvaldsson landsliðsmaður í knattspyrnu segir að landsleikurinn gegn Kanadamönnum á miðvikudaginn gæti ráðið úrslitum um hvort einhver lið hafi áhuga á að fá hann í sínar raðir. Eyjamaðurinn á ekki von á því að fá mörg tækifæri hjá þýska úrvalsdeildarliðinu Hannover á næstu vikum og mánuðum. „Þjálfarinn hefur sagt að það besta í […]

Endurheimti tíu skrofur með gangrita

Í sumar tókst að endurheimta tíu af þeim tuttugu gangritum sem settar voru á skrofur í Ystakletti í fyrra. Verða það að teljast mjög góðar endurheimtur og þá sérstaklega þar sem í ljós hefur komið að kettir hafa komið sér fyrir í skrofuholum í miðju varpinu. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.